Maxwell krefst lausnar gegn gjaldi og vísar ásökunum á bug Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 10. júlí 2020 18:43 Ghislaine Maxwell hefur krafist lausnar gegn gjaldi en hún vísar öllum ásökunum á hendur sér alfarið á bug. AP Photo/John Minchillo
Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta og samverkakona barnaníðingsins Jeffrey Epstein, neitar alfarið ásökunum um að hún hafi lokkað ungar stúlkur svo að hann gæti beitt þær kynferðisofbeldi. Þá segist hún jafnframt eiga það skilið að vera leyst úr haldi gegn greiðslu. Ghislaine sótti um lausn hjá héraðsdómstóli í Manhattan átta dögum eftir að hún var handtekin í New Hampshire. Yfirvöld segja að hún hafi verið þar í felum á stórri landareign sem hún keypti undir nafnleynd. Maxwell harðneitar öllum ásökunum og hyggst berjast af fullum krafti gegn þeim. Hún segist jafnframt eiga að vera talin saklaus uns sekt er sönnuð. Síðan á mánudag hefur Maxwell verið vistuð í fangelsi í Brooklyn í New York. Þá segist hún jafnframt ekki líkleg til að flýja, enda sé hún ekki á sakaskrá og hún hafi ákveðið að vera áfram í Bandaríkjunum eftir að Epstein var handtekinn í júlí á síðasta ári. Þá segir hún einnig mikla hættu á því að hún smitist af Covid-19 í varðhaldinu. Saksóknarar telja mikla hættu á því að gangi Maxwell laus muni hún flýja úr landi og telja því best að hún verði bak við lás og slá fram að réttarhöldunum. Þá telja þeir einnig mikla hættu á að Maxwell taki eigið líf, svo mikið óttast þeir það að við fangelsisvistun voru öll rúmföt og föt tekin af henni og henni gert að klæðast fatnaði úr pappír. Þá hafa auknar öryggisráðstafanir verið gerðar og hefur fangavörðum í fangelsinu verið fjölgað. Mikil hætta er talin á að samfangar hennar reyni að verða henni að meini. Réttarhöldin hefjast þann 14. júlí næstkomandi og gæti Maxwell átt yfir höfði sér allt að 35 ára fangelsi ef hún verður sakfelld. Hún er sökuð um að hafa á árunum 1994-1997 lokkað ungar stúlkur, allt niður í fjórtán ára gamlar, til starfa hjá Epstein, sem hann síðan misnotaði kynferðislega. Nærri ár var liðið síðan Epstein var handtekinn þar til Maxwell var handtekin, en Epstein vísaði öllum ásökunum um kynferðislegt ofbeldi og mansal á bug. Hann var sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna bæði í Flórída og Manhattan í New York. Epstein framdi sjálfsvíg eftir að hann var handtekinn á meðan hann sat í fangelsi á Manhattan.
Jeffrey Epstein Bandaríkin Bretland Tengdar fréttir Klipptu Trump út af mynd með Epstein og Maxwell Bandaríska fréttastofan Fox News hefur beðist afsökunar á að hafa klippt Donald Trump Bandaríkjaforseta út af mynd sem notuð var í umfjöllun um barnaníðinginn Jeffrey Epstein og samstarfskonu hans og vinkonu, Ghislaine Maxwell. 8. júlí 2020 06:37 Deutsche Bank sektaður vegna tengsla við Epstein Deutsche Bank, einn stærsti banki heims, hefur verið sektaður um 150 milljónir Bandaríkjadala, eða um 21 milljarð íslenskra króna fyrir að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með viðskiptum barnaníðingsins Jeffrey Epstein sem fóru fram í gegn um bankann. 7. júlí 2020 23:30 Fleiri saka Epstein um misnotkun í kjölfar handtöku Maxwell Fleiri hafa nú stigið fram og ásakað barnaníðinginn Jeffrey Epstein um að hafa brotið á sér. Ásakanirnar líta dagsins ljós í kjölfar þess að Ghislaine Maxwell, sem var nátengd Epstein áður en hann fyrirfór sér í fangaklefa sínum í ágúst í fyrra, var handtekin. 7. júlí 2020 07:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Klipptu Trump út af mynd með Epstein og Maxwell Bandaríska fréttastofan Fox News hefur beðist afsökunar á að hafa klippt Donald Trump Bandaríkjaforseta út af mynd sem notuð var í umfjöllun um barnaníðinginn Jeffrey Epstein og samstarfskonu hans og vinkonu, Ghislaine Maxwell. 8. júlí 2020 06:37
Deutsche Bank sektaður vegna tengsla við Epstein Deutsche Bank, einn stærsti banki heims, hefur verið sektaður um 150 milljónir Bandaríkjadala, eða um 21 milljarð íslenskra króna fyrir að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með viðskiptum barnaníðingsins Jeffrey Epstein sem fóru fram í gegn um bankann. 7. júlí 2020 23:30
Fleiri saka Epstein um misnotkun í kjölfar handtöku Maxwell Fleiri hafa nú stigið fram og ásakað barnaníðinginn Jeffrey Epstein um að hafa brotið á sér. Ásakanirnar líta dagsins ljós í kjölfar þess að Ghislaine Maxwell, sem var nátengd Epstein áður en hann fyrirfór sér í fangaklefa sínum í ágúst í fyrra, var handtekin. 7. júlí 2020 07:01