Sonurinn aðeins spillt fyrir nætursvefninum Eiður Þór Árnason skrifar 14. maí 2022 23:14 Einar segir að besta partýið verði hjá Framsóknarflokknum í nótt. Vísir Það er útlit fyrir ánægjulega nótt hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík ef marka má kannanir síðustu daga. Einar Þorsteinsson, oddviti flokksins í Reykjavík, segist þó reyna að halda sér á jörðinni þar sem kannanir hafi aldrei komið neinum inn í borgarstjórn. Nú þurfi þau að sjá hvað kemur upp úr kjörkössunum. „
Þú ert að grípa mig á þessu erfiðasta tímabili þar sem maður er að bíða eftir tölunum og ég skal bara viðurkenna að þetta er erfið bið. Kannanir hafa verið dálítið misvísandi, við höfum verið allt frá 11,4 upp í sautján komma eitthvað þannig að ég held mér alveg niðri á jörðinni. Sama hvað gerist, ef við fáum tvo, þrjá menn þá er það bara stórsigur og frábær árangur. Allt umfram það er náttúrulega bara einhvers konar kraftaverk,“ sagði hann þegar Kristín Ólafsdóttir fréttamaður ræddi við hann í kosningavöku Framsóknar sem fram fer í Kolaportinu. Nýfæddi sonurinn spillt svefni en einnig veitt orku Einar viðurkennir fúslega að hann sé orðinn þreyttur eftir viðburðaríka kosningabaráttu en þetta hafi óneitanlega verið ótrúlega skemmtileg upplifun fyrir þennan fyrrverandi fjölmiðlamann. „Maður fer bara og byrjar að hlaupa, hitta fólk, fara á fundi, fara í viðtöl og það er ótrúlega skemmtilegt og rosa mikil orka sem maður fær út úr því þrátt fyrir að það taki mikinn tíma. Svo er ég líka með einn sex vikna gamlan dreng heima sem hefur kannski aðeins spillt fyrir nætursvefninum en hann er líka alveg rosa mikill orkubolti og gefur manni mikla ró og orku, þannig að þetta hefur svona jafnast út líklega.“ Einar segist ekki vera búinn að ákveða hver fær fyrsta símtalið frá honum í fyrramálið ef Framsókn kemst í lykilstöðu í borginni. „Við þurfum bara að sjá hvaða styrk Framsókn hefur til að tala við flokkana og aðalatriði er náttúrulega að sjá hvort meirihlutinn heldur eða ekki, það er bara lykilatriði. Ef hann fellur þá opnast einhver staða. Við höfum séð það að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sagt það að það væri eðlilegast að þessir flokkar töluðu saman fyrst ef meirihlutinn heldur og við erum bara að sjá hvað gerist.“ Tilbúinn að leiða breytingar í borginni Einar segist ekki endilega stefna á það að verða borgarstjóri en hann sé tilbúinn að taka að sé öll þau verkefni sem sér eru falin. „Við fórum með þessa spurningu inn í þessar kosningar, hvort það væri ekki kominn tími til að breyta í Reykjavík, knýja fram breytingar. Miðað við meðbyrinn í könnunum þá er augljóst ákall frá borgarbúum um breytingar og ég er tilbúinn að leiða þær breytingar. En ég veit að það gerir enginn neitt einn. Maður gerir þetta alltaf í samvinnu við aðra og við sjáum bara hvernig þetta fer,“ segir Einar sem sér fram á heldur annasamt og spennandi kvöld. Eitt megi þó treysta á: „Hér verður líklega besta partýið. Við erum að koma úr þremur prósentum með engan borgarfulltrúa og náum einhverjum inn og þetta verður bara ótrúlega skemmtilegt hjá okkur í kvöld hérna í Kolaportinu.“
Framsóknarflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2022 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira