Uppselt á Old Trafford þar sem England hefur leik á EM Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. júlí 2022 13:31 Lauren Hemp og Leah Williamson skemmta sér konunglega á æfingu. Þær eru hluti af einstaklega spennandi landsliði Englands. Lynne Cameron/Getty Images Það er gríðarleg spenna fyrir Evrópumóti kvenna í fótbolta sem hefst síðar í dag þegar England mætir Austurríki á Old Trafford. Uppselt er á leikinn og er Englendingurinn þegar farinn að velta fyrir sér, er hann að koma heim?
Þegar kemur að fótbolta eru fáar þjóðir jafn fljótar að fara fram úr sér og Englendingar. Eftir frábæran árangur Englands á Evrópumóti karla síðasta sumar þá er spennan gríðarleg fyrir komandi Evrópumóti kvenna. Ekki er nóg með að mótið fari fram í Englandi heldur er uppselt á Old Trafford, heimavöll Manchester United, og samkvæmt Opta er England líklegasti sigurvegari mótsins ásamt Frakklandi. Grab yourself some paracetamol, as there's a case of Euro 2022 FEVER today. Ahead of England vs. Austria tonight, check out all out our #WEURO2022 preview content. Group previews. Tournament predictions. Players to watch. — The Analyst (@OptaAnalyst) July 6, 2022 Sem stendur eru 19 prósent líkur að England sigri Evrópumótið. Liðið hefur verið hreint út sagt frábært í undankeppni HM 2023 og virðist sem ráðningin á hinni hollensku Sarina Wiegman hafi verið besta ákvörðun enska knattspyrnusambandsins í fleiri ár. Hin 52 ára Wiegman er þaulreynd og hefur gert enska liðið að ógnarsterku liði sem er til alls líklegt. Liðið býr yfir mikilli reynslu í leikmönnum á borð við Millie Bright, Lucy Bronze, Fran Kirby og Ellen White. Að sama skapi er liðið fullt af gríðarlega efnilegum og hæfileikaríkum leikmönnum, má þar nefna Lauren Hemp, Alessia Russo og Georgia Stanway. England leikur í A-riðli ásamt Austurríki, Noregi og Norður-Írlandi. Mótið hefst fyrir framan rúmlega 70 þúsund manns á Old Trafford í Manchester þegar England tekur á móti Austurríki. Það er gríðarleg spenna fyrir mótinu í Englandi og er enska þjóðin þegar farin að syngja með laginu „Three Lions“ eða eins og það er betur þekkt: „Football´s Coming Home.“ Nú er bara að bíða og sjá hvort England standi sig á stóra svðinu eða geri í buxurnar eins og svo oft áður þegar pressan er hvað mest.
Fótbolti EM 2022 í Englandi Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira