Glæpabaróninn Otoniel verður framseldur til Bandaríkjanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. október 2021 23:11 Otoniel er leiðtogi Clan del Golfo, eða Flóagengisins. Það er talið telja um 1.800 meðlimi, sem hafa meðal annars verið handteknir í Argentínu, Brasilíu, Hondúras, Perú og á Spáni. Gengið ræður yfir fjölda smyglleiða frá Kólumbíu til Bandaríkjanna. AP Eiturlyfjabaróninn Dario Antonio Úsuga, kallaður Otoniel, verður framseldur til Bandaríkjanna. Otoniel var handsamaður á laugardag í umfangsmikilli aðgerð lögreglunnar og hersins í Kólumbíu.
Otoniel er leiðtogi stærsta glæpagengis Kólumbíu og hefur um árabil verið á lista bandaríska eiturlyfjaeftirlitsins yfir eftirlýsta glæpamenn. Bandarísk yfirvöld höfðu sett 5 milljónir bandaríkjadala til höfuðs glæpabaróninum en Otoniel hefur meðal annars verið sakaður um að flytja 73 rúmmetra af kókaíni til Bandaríkjanna á árunum 2003 til 2014. Varnarmálaráðherra Kólumbíu, Diego Molano, sagði í samtali við dagblaðið El Tiempo að næsta skref væri að koma til móts við framsalskröfu Bandaríkjamanna. Otoniel hefur verið fluttur á herstöð í höfuðborginni Bogotá og mun dvelja þar þar til hann verður framseldur. Forsetinn Iván Duque fagnaði handtöku Otoniel í sérstöku sjónvarpsávarpi. „Þetta er stærsta högg sem fíkniefnasmygl í landinu hefur orðið fyrir á þessari öld,“ sagði hann. „Það er aðeins samanburðarhæft við fall Pablo Escobar á tíunda áratug síðustu aldar.“ Otoniel var handsamaður á felustað sínum í Antioquia-héraði í norðvesturhluta Kólumbíu, nálægt landamærunum að Panama. 500 hermenn tóku þátt og 22 þyrlur voru notaðar í aðgerðinni. Einn lögreglumaður lést. Glæpabaróninn hafði farið huldu höfði um langt skeið og flutt sig á milli staða á strjálbýlum svæðum landsins til að forðast handtöku. Þá notaði hann ekki síma, heldur reiddi sig á aðstoðarmenn sem fluttu skrifleg skilaboð til þeirra sem hann þurfti að hafa samband við. Að sögn yfirvalda tókst að hafa uppi á Otoniel með notkun gervihnatta. Þau fengu aðstoð bæði frá bandarískum og breskum stofnunum. Duque sagði um að ræða umfangsmestu aðgerðir sem herinn hefði ráðist í í frumskógum landsins.
Kólumbía Bandaríkin Fíkniefnabrot Tengdar fréttir Handsömuðu einn alræmdasta glæpaforingja Kólumbíu Lögregla og her í Kólumbíu handsamaði í dag einn alræmdasta glæpaforingja landsins, Dairo Antonio Usuga, sem er einnig þekktur sem Otoniel, eftir fimm ára þrotlausa leit. 23. október 2021 23:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Fleiri fréttir Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Sjá meira
Handsömuðu einn alræmdasta glæpaforingja Kólumbíu Lögregla og her í Kólumbíu handsamaði í dag einn alræmdasta glæpaforingja landsins, Dairo Antonio Usuga, sem er einnig þekktur sem Otoniel, eftir fimm ára þrotlausa leit. 23. október 2021 23:52