Gæti komið í veg fyrir blindu milljóna í Bandaríkjunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. janúar 2022 16:23 RetinaRisk-teymið. Efri röð frá vinstri: Thor Aspelund, Francisco Rojas, Einar Stefánsson, Bala Kamallakharan. Neðri röð frá vinstri: Ægir Þór Steinarsson,Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, Arna Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Stefán Einarsson. Aðsend Íslenska sprotafyrirtækið Risk ehf. og bandarísku sykursýkissamtökin (ADA) hafa gert með sér samkomulag um að gera RetinaRisk áhættureikninn, sem reiknar út áhættu fólks með sykursýki á sjónskerðandi augnsjúkdómum, aðgengilegan almenningi í Bandaríkjunum.
Reiknirinn er sá eini sinnar tegundar í heiminum og er afrakstur yfir 10 ára vísindarannsókna og þróunar á Íslandi og erlendis. Í tilkynningu segir að með þessu samstarfi sé stigið fyrsta skrefið með ADA á vegferð í átt að því að gjörbylta einstaklingsbundinni sykursýkismeðferð á heimsvísu. „Sykursýki er í dag ein helsta orsök blindu í fólki á vinnualdri um heim allan en koma má í veg fyrir sjónskerðinguna í yfir 90% tilvika með snemmgreiningu og viðeigandi meðferð. Það er til mikils að vinna þar sem Alþjóðasykursýkissamtökin (IDF) gera ráð fyrir að í dag séu í kringum hálfur milljarður manna með sykursýki og sú tala eigi eftir að fara yfir 700 milljónir árið 2045. RetinaRisk mun skipta sköpum til að auka líkur á snemmgreiningu og gera fólki kleift að bregðast við í tíma til að koma í veg fyrir sjónskerðingu og blindu,“ segir í tilkynningunni. Risk ehf. (retinarisk.com) var stofnað af Einari Stefánssyni augnlækni, Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, og Örnu Guðmundsdóttur, innkirtlalækni. RetinaRisk áhættureiknirinn var þróaður með dyggum stuðningi Tækniþróunarsjóðs og innlendra fjárfesta og er sá fyrsti í röð áhættureikna fyrir sykursýki og aðra króníska sjúkdóma sem eru í þróun. Þörfin fyrir vísindalega nákvæmt áhættumat, eins og RetinaRisk, til að bera kennsl á fólk sem þarf aukna heilbrigðisþjónustu og eftirfylgni sé orðin gríðarlega mikilvæg í dag. „Sjúklingahópar með króníska sjúkdóma, eins og sykursýki, fara ört stækkandi og þörfin fyrir aukna og einstaklingsmiðaða upplýsingagjöf og snjallari forgangsröðun á framboði heilbrigðisþjónustu mun aukast verulega á næstu árum. Það sterka vísinda- og þróunarstarf sem Risk ehf. hefur unnið síðustu 10 ár setur fyrirtækið í fremstu röð til að mæta þessari þörf.“ Bandarísku sykursýkissamtökin, eða ADA (diabetes.org), eru stærstu sykursýkissamtök heims og leiðandi á sviði sykursýkismeðferðar. Mikið vísindastarf sé unnið innan samtakana og alþjóðlegir staðlar um meðferð og skilgreiningu á sjúkdómnum eigi oftar en ekki uppruna sinn innan veggja þeirra. Að sögn Sigurbjargar Ástu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra, munu Risk ehf. og bandarísku sykursýkissamtökin halda áfram að þróa samstarfið. „Við erum afar ánægð með þetta samstarf með ADA en í því felst mikil viðurkenning á RetinaRisk áhættureikninum. Samstarfið mun nýtast okkur sem stökkpallur inn á Bandaríkjamarkað, sem er einn af mikilvægustu mörkuðum heims fyrir stafrænar heilbrigðislausnir tengdar sykursýki,” segir Sigurbjörg Ásta. Áhugasamir geta nálgast RetinaRisk áhættureikninn hér og þeir sem eru með sykursýki geta reiknað út áhættu á sjónskerðandi augnsjúkdómum.
Bandaríkin Vísindi Heilbrigðismál Nýsköpun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Fleiri fréttir Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira