Johnson sagður hafa reynt að útvatna skýrslu um framferði ráðherra Kjartan Kjartansson skrifar 21. nóvember 2020 12:04 Johnson lýsti í gær stuðningi við Priti Patel, innanríkisráðherra, þrátt fyrir að sérfræðingur í siðareglum ráðherra hefði komist að þeirri niðurstöðu að hún hefði brotið reglurnar með framkomu sinni við starfsfólk ráðuneytis síns. Vísir/EPA
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er sagður hafa reynt að útvatna niðurstöður skýrslu ráðgjafa ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra um að innanríkisráðherrann hafi lagt starfsmenn ráðuneytis síns í einelti. Ráðgjafinn sagði af sér eftir að Johnson lýsti yfir trausti á innanríkisráðherrann í gær. Priti Patel, innanríkisráðherra, var talin hafa brotið siðareglur ráðherra með því að öskra á starfsfólk og hóta því. Alex Allan, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í siðareglum ráðherra, taldi Patel hafa sýnt af sér eineltistilburði. Hann lét af störfum þegar Johnson sagðist styðja Patel. Breska ríkisútvarpið BBC og dagblaðið Times greina frá því í dag að Johnson hafi reynt að sannfæra Allan um að tóna niður niðurstöður sínar um Patel en án árangurs. Sérstaklega hafi Johnson viljað að Allan talaði ekki um að í hegðun Patel hafi falist kúgunar- eða eineltistilburðir, að sögn Reuters-fréttastofunnara. Talskona Johnson segir að hann hafi rætt við Allan til að skilja málefnin sem voru til umfjöllunar. Ályktanir í skýrslu Allan séu að öllu leyti hans. Umrót hefur verið í ríkisstjórn Johnson að undanförnu. Dominic Cummings, einn nánasti ráðgjafi hans og einn hugmyndafræðinga útgöngu Bretlands úr Evrópusambandsins, lét af störfum í síðustu viku eftir harðar innanhússdeilur á stjórnarheimilinu. Johnson var meðal annars sagður hafa verið ósáttur við að Cummings og samskiptastjóri Downing-strætis 10 hafi verið gjarnir á að tala við fjölmiðla á laun, í sumum tilfellum til að koma höggi á Carrie Symonds, unnustu forsætisráðherrans.
Bretland Tengdar fréttir Yfirmaður siðanefndar segir af sér eftir að Johnson lýsti stuðningi við ráðherra Ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra sagði af sér í dag eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við ráðherra sem er talinn hafa sýnt af sér kúgunartilburði gagnvart starfsmönnum ráðuneytis síns. 20. nóvember 2020 12:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Fleiri fréttir Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Sjá meira
Yfirmaður siðanefndar segir af sér eftir að Johnson lýsti stuðningi við ráðherra Ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra sagði af sér í dag eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við ráðherra sem er talinn hafa sýnt af sér kúgunartilburði gagnvart starfsmönnum ráðuneytis síns. 20. nóvember 2020 12:25