Valskonur sýndu í gærkvöldi að spárnar síðasta haust voru ekkert bull Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2021 15:32 Blikinn Sóllilja Bjarnadóttir reynir skot á körfu í gær en hin unga Anna Lára Vignisdóttir hjá Keflavík reynir að verja skotið hennar. Vísir/Hulda Margrét Meistaraefnin í Vals sendu heldur betur frá sér skýr skilaboð þegar kvennakarfan fór aftur af stað eftir meira en hundrað daga hlé. Guðjón Guðmundsson fór yfir leiki gærkvöldsins í Domino´s deild kvenna í körfubolta en þar voru á ferðinni fyrstu deildarleikir á Íslandi í 99 daga. Valur vann 33 stiga á bikarmeisturum Skallagríms í gær, 91-58, í fyrstu umferðinni eftir kórónuveiruhléið. Skallagrímsliðið komst reyndar í 15-7 í upphafi leiks en Valsliðið svaraði með 19-5 spretti og leit ekki til baka eftir það. Valsliðið var allt annað en sannfærandi í haust þar sem eini sigur liðsins kom eftir kæru en nú voru þær búnar að endurheimta þrjár af bestu leikmönnum deildarinnar í þeim Helenu Sverrisdóttur, Hildi Björg Kjartansdóttur og Kiönu Johnson. Klippa: Gaupi fór yfir fjórðu umferð Domino´s deildar kvenna Skallagrímskonur unnu Val í meistarakeppninni í haust en þetta var allt annað Valslið sem þær voru að glíma við í gær. Breiddin í Vaksliðinu er svakalega og sjö leikmenn liðsins voru með ellefu eða hærra í framlagi í leiknum í gær. Kiana Johnson var með 19 stig og 8 stoðsendingar, Hallveig Jónsdóttir skoraði 15 stig, Ásta Júlía Grímsdóttir kom með 14 stig og 9 fráköst af bekknum og Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 13 stig og tók 8 fráköst. Þá var Helena Sverrisdóttir með 7 stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar og 4 stolna bolta á 26 mínútum í sínum fyrsta leik eftir barnsburð. Helena hitti ekki vel en hafði að venju gríðarlega áhrif á leikinn með leikskilningi sínum og ákvörðunartöku. Haukakonur sendu einnig skýr skilaboð í sannfærandi sigri á spútnikliði Fjölnis, 70-54. Fjölnir, sem vann alla þrjá leiki sína í haust, tefldi fram fjórum erlendum leikmönnum í leiknum en engum leikmanni liðsins tókst að skora meira en níu stig. Haukaliðið átti þrjá stigahæstu leikmenn vallarins í þeim Alyesha Lovett (23 stig), Bríeti Sif Hinriksdóttur (13 stig) og Evu Margréti Kristjánsdóttur (12 stig) og með þessum sigri komst liðið á toppinn í deildinni. Snæfell lék sinn fyrsta leik með Haiden Denise Palmer og fagnaði sínum fyrsti sigri með því að vinna KR 87-75 í uppgjör tveggja liða sem töpuðu öllum leikjum sínum í haust. Palmer missti af leikjunum í haust en var með 25 stig, 11 stolna bolta, 8 fráköst og 8 stoðsendingar í gær. Anna Soffía Lárusdóttir skoraði 19 stig og Rebekka Rán Karlsdóttir var með 13 stig. Keflavík vann tíu stiga endurkomusigur á Breiðabliki í Smáranum, 66-56, en Keflavíkurkonur unnu síðustu ellefu mínútur leiksins 22-6. Daniela Wallen Morillo skoraði 19 stig og tók 11 fráköst en fimm næstu leikmenn Keflavíkurliðsins skoruðu á bilinu sjö til níu stig. 20 stig frá Þórdísi Jónu Kristjánsdóttur og fjórtán fráköst frá Isabellu Ósk Sigurðardóttur dugðu ekki Blikaliðinu. Hér fyrir ofan má sjá Gaupa fara yfir alla leikina í Domino´s deild kvenna í gærkvöldi. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Guðjón Guðmundsson fór yfir leiki gærkvöldsins í Domino´s deild kvenna í körfubolta en þar voru á ferðinni fyrstu deildarleikir á Íslandi í 99 daga. Valur vann 33 stiga á bikarmeisturum Skallagríms í gær, 91-58, í fyrstu umferðinni eftir kórónuveiruhléið. Skallagrímsliðið komst reyndar í 15-7 í upphafi leiks en Valsliðið svaraði með 19-5 spretti og leit ekki til baka eftir það. Valsliðið var allt annað en sannfærandi í haust þar sem eini sigur liðsins kom eftir kæru en nú voru þær búnar að endurheimta þrjár af bestu leikmönnum deildarinnar í þeim Helenu Sverrisdóttur, Hildi Björg Kjartansdóttur og Kiönu Johnson. Klippa: Gaupi fór yfir fjórðu umferð Domino´s deildar kvenna Skallagrímskonur unnu Val í meistarakeppninni í haust en þetta var allt annað Valslið sem þær voru að glíma við í gær. Breiddin í Vaksliðinu er svakalega og sjö leikmenn liðsins voru með ellefu eða hærra í framlagi í leiknum í gær. Kiana Johnson var með 19 stig og 8 stoðsendingar, Hallveig Jónsdóttir skoraði 15 stig, Ásta Júlía Grímsdóttir kom með 14 stig og 9 fráköst af bekknum og Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 13 stig og tók 8 fráköst. Þá var Helena Sverrisdóttir með 7 stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar og 4 stolna bolta á 26 mínútum í sínum fyrsta leik eftir barnsburð. Helena hitti ekki vel en hafði að venju gríðarlega áhrif á leikinn með leikskilningi sínum og ákvörðunartöku. Haukakonur sendu einnig skýr skilaboð í sannfærandi sigri á spútnikliði Fjölnis, 70-54. Fjölnir, sem vann alla þrjá leiki sína í haust, tefldi fram fjórum erlendum leikmönnum í leiknum en engum leikmanni liðsins tókst að skora meira en níu stig. Haukaliðið átti þrjá stigahæstu leikmenn vallarins í þeim Alyesha Lovett (23 stig), Bríeti Sif Hinriksdóttur (13 stig) og Evu Margréti Kristjánsdóttur (12 stig) og með þessum sigri komst liðið á toppinn í deildinni. Snæfell lék sinn fyrsta leik með Haiden Denise Palmer og fagnaði sínum fyrsti sigri með því að vinna KR 87-75 í uppgjör tveggja liða sem töpuðu öllum leikjum sínum í haust. Palmer missti af leikjunum í haust en var með 25 stig, 11 stolna bolta, 8 fráköst og 8 stoðsendingar í gær. Anna Soffía Lárusdóttir skoraði 19 stig og Rebekka Rán Karlsdóttir var með 13 stig. Keflavík vann tíu stiga endurkomusigur á Breiðabliki í Smáranum, 66-56, en Keflavíkurkonur unnu síðustu ellefu mínútur leiksins 22-6. Daniela Wallen Morillo skoraði 19 stig og tók 11 fráköst en fimm næstu leikmenn Keflavíkurliðsins skoruðu á bilinu sjö til níu stig. 20 stig frá Þórdísi Jónu Kristjánsdóttur og fjórtán fráköst frá Isabellu Ósk Sigurðardóttur dugðu ekki Blikaliðinu. Hér fyrir ofan má sjá Gaupa fara yfir alla leikina í Domino´s deild kvenna í gærkvöldi. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik