Þrír tipparar voru með 13 rétta á enska getraunaseðlinum á laugardaginn og fær hver í sinn hlut um 3,5 milljónir króna. Þar á meðal var húskerfi Víkinga en Víkingar hafa verið öflugir í getraunastarfinu, að því er segir í tilkyningu frá Íslenskri getspá.
„Á laugardögum er safnað saman í húskerfi og tippað á enska getraunaseðilinn. Húskerfið er þannig uppbyggt að allir þeir sem vilja vera með geta sett upphæð að eigin vali í pottinn. Getraunanefnd Víkings sér svo um að tippa á enska getraunaseðilinn fyrir upphæðina sem safnast. Hver og einn tippari fær svo vinning í réttu hlutfalli við upphæðina sem hann lagði inn í pottinn. Húskerfið hefur verið í gangi í fimm vikur og hefur skilað tippurum ágætis ávöxtun sem og Víkingum um 500.000 krónur í áheit og sölulaun frá Getraunum, eingöngu vegna húskerfisins,“ segir ennfremur.