Hjúkrunarfræðingar lýsa hættuástandi á Bráðamóttökunni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. október 2021 22:45 Fyrir utan Bráðamóttökuna. Vísir/Vilhelm Daglega kemur fyrir að sjúkrabílar bíði með sjúklinga á börum sem komast ekki að vegna plássleysis á Bráðamóttökunni og sjúklingum er komið fyrir í öllum skúmaskotum af sömu ástæðu.
Svona lýsa hjúkrunarfræðingar á Bráðamótttöku Landspítalans ástandinu þar í fréttatilkynningu sem þeir sendu á fjölmiðla í kvöld. Segja þeir að stjórnendum spítalans sem og heilbrigðisyfirvöldum hafi verið full ljóst að hættuástand skapist á deildinni við þær aðstæður sem lýst er í tilkynningunni. „Það hefur ekki leitt til neinna breytinga og sjúklingum er boðið uppá að liggja á bekkjum á göngum deildarinnar, í öllum skúmaskotum og jafnvel í herbergi ætluðu starfsfólki til að matast í og inn á herbergi ætluðu aðstandendum,“ skrifa hjúkrunarfræðingarnir. Mikill biðtími geti því verið eftir aðstoð heilbrigðisstarfsfólks á Bráðamóttökunni. „Daglega kemur upp sú staða að sjúkrabílar bíða með sjúklinga á börum þar sem ekki er til pláss og daglega fyllist biðstofa Bráðamóttökunnar af veiku og slösuðu fólki sem bíður allt upp í 6 klst eftir því að komast inn í skoðun, greiningu og meðferð,“ segir í tilkynningunni. Segir stjórn og forstjóra Landspítala óhæf til að leysa vanda bráðamóttöku Fjöldi þeirra sem þurfi á aðstoð Bráðamóttökunnar sé dag eftir mun meiri en gert er ráð fyrir. „Dag eftir dag fer fjöldi sjúklinga yfir 80 talsins í rými sem ætlað er 36 veikum og slösuðum. Dag eftir dag bíða allt að 30 sjúklingar eftir innlögn á legudeildir spítalans og þegar verst lætur bíða á deildinni milli 40 og 50 sjúklingar eftir innlögn á legudeildir,“ segir í tilkynningunni. Óttinn við að gera mistök sé mikill við þessar aðstæður. „Hættuástand vegna þess að öryggi sjúklinga er ekki tryggt, vegna þess að líkur á mistökum stóraukast og vegna þess að hjúkrunarfræðingar, jafnt og annað starfsfólk er yfirkeyrt á vöktum sínum vikum og mánuðum saman. Við þessar starfsaðstæður óttast starfsfólk að gera mistök sem geta haft alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar og þurfa að lifa með því.“
Heilbrigðismál Landspítalinn Tengdar fréttir Löng bið á bráðamóttöku og þung staða á Landspítala Landspítali vekur athygli á því að mikið álag er núna á spítalanum, sérstaklega á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Þetta segir í tilkynningu frá Landspítalanum. 4. ágúst 2021 16:28 Bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir hana sprungna Eggert Eyjólfsson, bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að bráðamóttakan sé ekki í stakk búin að taka á móti nema einum alvarlega slösuðum sjúklingi í kvöld. 2. ágúst 2021 22:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Innlent Fleiri fréttir Segja alvarlegar staðreyndarvillur í umfjöllun Kastljóss SA og SFF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Sjá meira
Löng bið á bráðamóttöku og þung staða á Landspítala Landspítali vekur athygli á því að mikið álag er núna á spítalanum, sérstaklega á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Þetta segir í tilkynningu frá Landspítalanum. 4. ágúst 2021 16:28
Bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir hana sprungna Eggert Eyjólfsson, bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að bráðamóttakan sé ekki í stakk búin að taka á móti nema einum alvarlega slösuðum sjúklingi í kvöld. 2. ágúst 2021 22:49