Afreksíþróttafólk og „áhugajoggarar“ lagðir að jöfnu

Helga Vala Helgadóttir gagnrýndi sóttvarnayfirvöld á þinginu í dag.
Helga Vala Helgadóttir gagnrýndi sóttvarnayfirvöld á þinginu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það virðist því miður vera sáralítill skilningur á stöðu þessa fólks í ríkisstjórnarflokkunum sem setur þau á sama stað og iðkun almennings,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar á þingfundi í dag, þar sem rætt var um störf þingsins.

Vísaði hún til yfirlýsingar Domino's-deildar karla og kvenna í körfuknattleik, sem hvetja ríkisstjórn Íslands og sóttvarnaryfirvöld til þess að heimila ábyrgar æfingar atvinnu- og afreksíþróttafólks að nýju á meðan á heimsfaraldri stendur.

„Enda eru æfingar mikivægasti þáttur hvers kyns iðlkunar. Æfingar byggja upp og viðhalda færni, þoli og þreki og í tilfelli íþróttafólks fyrirbyggja þær meiðsl. Þau hafa nú búið við skertar æfingar frá 20. október á höfuðborgarsvæðinu en frá 5. nóvember um allt land, á sama tíma og æfingar og leikir fara fram alls staðar annars staðar á byggðu bóli,“ sagði Helga Vala og hélt áfram:

„Það er auðvitað ekkrert grín að vera að berjast við heimsfaraldur en það virðist sem stjórnarliðar átti sig ekki á muninum á starfi atvinnu- og afreksíþróttafólks annars vegar og áhugajoggurum eins og okkur sem spriklum öðru hvoru inni í líkamsræktarstöðvumn og um fjöll hins vegar,“ sagði hún.

Æfingar leyfðar alls staðar nema hér

„Við fyllumst stolti af árangri okkar fólks á stórmótum en staðan er sú að verði æfingar ekki leyfðar með góðum fyrirvara áður en leikir verða leyfðir er hætt við að iðkendur hafi ekki tíma til áðurnefndrar uppbyggingar og eigi því hættara á alvarlegum meiðslum og öðrum langvarandi afleiðingum. Slíkt mun hafa veruleg áhrif á keppnisíþróttir innanlands, jafnt sem á landsliðið.

Hvernig stendur á því að í öllum ríkjum heims, nágrannaríikjujm sem og ríkjum í fjarska eru leyfðar æfingar og keppni í íþróttagreinum en ekki hér. Er þetta ekki einhver misskilningur, herra forseti?,“ spurði Helga Vala í lokin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert