Pálína: Valur missti ekki bara Helenu heldur líka langmesta karakterinn í Valsliðinu í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2020 16:31 Sylvía Rún Hálfdanardóttir býr sig undir að taka frákast á milli tveggja Snæfellsstelpan á síðustu leiktíð. Vísir/Vilhelm
Það vita flestir að Helena Sverrisdóttir verður ekki með Valskonum í Domino´s deild kvenna í körfubolta framan af vetri en hún er ekki eini mikilvægi leikmaðurinn sem Valsliðið missti í sumar. Pálína Gunnlaugsdóttir, sérfræðingur þáttarins, fór aðeins yfir breytingarnar á kvennaliði Vals í Domino´s Körfuboltakvöldi í gær en Valsliðið er án sterkra leikmanna í upphafi tímabils. Domino´s Körfuboltakvöld fór yfir öll átta lið deildarinnar og spáði í spilin. Það spá allir Valskonum Íslandsmeistaratitlinum en Pálína vakti athygli á því að liðið hefur misst tvo öfluga leikmenn. „Öll lið myndu sakna þess að hafa ekki sinn besta leikmann. Helena er meira heldur en besti leikmaðurinn því hún er framúrskarandi. Það er mikið skarð sem þarf að fylla í Valsliðinu,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir en hún vildi einnig leggja áherslu á mikilvægi Sylvíu Rúnar Hálfdanardóttur sem er hætt þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul. „Þær eru búnar að bæta aðeins við sig eins og Ólafur þjálfarinn þeirra talað um. Þær fengu Auði og Jóhönnu en þær hafa líka misst Sylvíu,“ sagði Pálína. Sylvía Rún Hálfdanardóttir var með 10,3 stig og 6,6 fráköst að meðaltali á 24,5 mínútum með Valsliðinu í fyrra. „Mér finnst Sylvía líka vera stór missir fyrir Valsliðið af því að í fyrra fannst mér Sylvía vera langmesti karakterinn í Valsliðnu. Þær eru allar ógeðslega góðar í körfubolta og spiluðu allar ógeðslega vel en hún kom með þennan neista og drifkraft,“ sagði Pálína. „Þegar hún skoraði þá fagnaði hún og hún náði liðinu með sér. Ég held það að missa bæði Helenu og Sylvíu, sem að mínu mati voru tveir bestu íslensku leikmenn liðsins ásamt Dagbjörtu Dögg, sé mikið högg,“ sagði Pálína. „Þær eru engu að síður gríðarlega öflugar og það er ástæða fyrir því að við spáum þeim fyrsta sætinu. Við höfum trú á því að þær fari alla leið þrátt fyrir þennan missi,“ sagði Pálína en það má sjá alla umfjöllunina um breytingarnar á Valsliðinu hér fyrir neðan. Klippa: Dominos Körfuboltakvöld: Breytingarnar á kvennaliði Vals
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Handbolti Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Íslenski boltinn Hlauparinn sem fékk að vinna fær ekki að halda sigrinum Sport Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn Fleiri fréttir Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með „Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“ „Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“ „Ég held að þetta komi bara með reynslunni“ „Náðum að valta yfir þær í seinni hálfleik“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Valur 92-59 | Einstefna og grænar einum sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 93-75 | Grindvíkingar flugu inn í undanúrslitin Leggur skóna á hilluna Arnór átti Play leiksins: „Hann var stórkostlegur“ Óli var búinn að vara við: „Ef þeir syngja um mig þá kveikir það í mér“ Mætti fyrst allra í Prada og var valin fyrst Kjartan Atli sló metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður Uppgjör: Tindastóll - Grindavík 88-99 | Gulir með annan fótinn í undanúrslit „Þeir náðu svolítið að snúa þessu í sinn leik“ „Svona leikir eru leikir andans“ Sjá meira