Enski boltinn

Liðfélagi Gylfa úr þriggja leikja banni og mögulega beint á meiðslalistann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Richarlison gengur framhjá Gylfa Þór Sigurðssyni og af velli eftir að hafa fengið rauða spjaldið á móti Liverpool. Hann hefur ekki spilað fyrir Everton síðan.
Richarlison gengur framhjá Gylfa Þór Sigurðssyni og af velli eftir að hafa fengið rauða spjaldið á móti Liverpool. Hann hefur ekki spilað fyrir Everton síðan. Getty/Laurence Griffiths

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton mega helst ekki vera án brasilíska sóknarmannsins Richarlison og fréttir næturinnar voru því ekki skemmtilegar fyrir Everton liðið.

Edinson Cavani braut það illa á Richarlison í undankeppni HM í nótt að Cavani fékk rautt spjald og Richarlison þurfti að fara af velli.

Richarlison var að spila sína fyrstu leiki sína um miðjan október í þessum landsleikjaglugga þar sem hann hefur verið í leikbanni í ensku úrvalsdeildinni.

Richarlison fékk beint rautt spjald fyrir brot á Liverpool manninum Thiago í nágrannaslag Everton og Liverpool 17. október síðastliðnum.

Everton náði samt 2-2 jafntefli út úr þeimleik og var þá með 13 stig af 15 mögulegum og sat í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Þar sem að þetta var beint rautt spjald þá fékk Richarlison þriggja leikja bann.

Everton náði ekki í eitt einasta stig án hans því liðið tapaði 2-0 á móti Southampton, 2-1 á móti Newcastle og 3-1 á móti Manchester United í leikjunum sem hann var í banni. Núll stig í þremur leikjum og fyrir vikið er liðið dottið niður í sjöunda sæti.

Það er augljóst á þessari upptalningu að Everton liðið getur helst ekki verið án Richarlison.

Richarlison átti að snúa aftur úr leikbanni um helgina þegar Everton heimsækir Fulham í London á sunnudaginn.

Edinson Cavani gæti hafa breytt þeim plönum með broti sínu. Cavani steig á ökklann á Richarlison sem varð að fara að velli.

Það verður síðan að koma í ljós hvort meiðsli Richarlison séu það alvarleg að hann missi af enn fleiri leikjum með Everton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×