Arsenal missteig sig gegn botnliðinu – Welbeck hetja Brighton

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, má vera svekktur með niðurstöðu dagsins.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, má vera svekktur með niðurstöðu dagsins. AFP

Arsenal fór illa að ráði sínu þegar það fékk botnlið Burnley í heimsókn á Emirates-völlinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í dag. Danny Welbeck tryggði þá Brighton & Hove Albion jafntefli gegn Leicester City með marki seint í leiknum.

Arsenal auðnaðist ekki að skora þrátt fyrir að hafa ráðið lögum og lofum gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni í Burnley.

Niðurstaðan markalaust jafntefli, sem eru flott úrslit fyrir Burnley en afleit fyrir Skytturnar í baráttu liðsins um Meistaradeildarsæti.

Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 83. mínútu hjá Burnley.

Arsenal er eftir jafnteflið í 6. sæti deildarinnar með 36 stig eftir 21 leik, tveimur stigum á eftir Manchester United, auk þess sem Arsenal á leik til góða.

Burnley er áfram á botni deildarinnar með aðeins 12 stig eftir 18 leiki en á fjóra leiki til góða á Norwich City sem er fjórum stigum fyrir ofan í síðasta örugga sætinu, 17. sæti.

Patson Daka kom heimamönnum í Leicester á bragðið strax í upphafi síðari hálfleiks þegar hann fylgdi eftir skoti Harvey Barnes sem Robert Sánchez hafði varið.

Á 82. mínútu jafnaði Welbeck hins vegar metin með góðum skalla eftir fyrirgjöf Neal Maupay.

Danny Welbeck fagnar jöfnunarmarki sínu ásamt Jakub Moder og Tariq …
Danny Welbeck fagnar jöfnunarmarki sínu ásamt Jakub Moder og Tariq Lamptey. AFP

Þar við sat og 1:1 jafntefli reyndust lokatölur.

Leicester og Brighton sigla áfram lygnan sjó um miðja deild. Leicester er í 10. sæti með 26 stig og Brighton er í sætinu fyrir ofan með 30 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert