Afgreiðsla Jóns á rafbyssuheimild ekki góð stjórnsýsla Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. mars 2023 12:46 Umboðsmaður segir Jón hafa virt ósk Katrínar að vettugi. Umboðsmaður Alþingis segir þá ákvörðun Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra að afgreiða heimild til handa lögreglu til að bera rafvopn án þess að bera málið undir ríkisstjórn ekki samræmast kröfum um vandaða stjórnsýsluhætti.
Í erindi sem Skúli Magnússon umboðsmaður hefur sent forsætisráðherra segir meðal annars að ráðherrum beri að haga athöfnum sínum í samræmi við lög og stjórnarskrá. Ráðherrum beri samkvæmt stjórnarskrá að bera „mikilvæg stjórnarmálefni“ upp á ríkisstjórnarfundi og umboðsmaður fái ekki annað skilið af bréfi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til umboðsmanns að ákvörðun Jóns hafi falið í sér „áherslubreytingu“ og þar með verið „mikilvægt stjórnarmálefni“ sem bera átti undir ríkisstjórnarfund. Eins og Vísir hefur greint frá greindi Jón frá breytingunum í aðsendir grein í Morgunblaðinu 30. desember síðastliðinn. Sama dag sagði forsætisráðherra að ræða þyrfti málið í ríkisstjórn. Seinna kom hins vegar í ljós að Jón undirritað nýjar reglur um vopnaburð lögreglu sama dag og hann greindi frá breytingunum. Þær voru síðan samdægurs sendar áfram til birtingar í Stjórnartíðindum. Umboðsmaður segir í áliti sínu að í svörum Jóns komi fram að honum hafi orðið kunnugt um afstöðu Katrínar þennan dag, 30. desember. Honum hefði þá verið í lófa lagt að fresta framkvæmd málsins þar til það hefði verið rætt í ríkisstjórn. „Svo sem fram er komið bar dómsmálaráðherra málið ekki upp á fundir ríkisstjórnar fyrr en 13. janúar 2023 og þá án þess að virðast hafa slegið framkvæmd þess á frest eða gert við það fyrirvara með hliðsjón af fyrirhugaðri umræðu í ríkisstjórn. Í þessu sambandi athugast að reglurnar höfðu þá verið sendar Stjórnartíðindum á ný til rafrænnar birtingar, þ.e. 9. janúar sl.“ segir umboðsmaður. Hann segir ekki annað að sjá en að Jón hafi virt óskir Katrínar að vettugi. Umboðsmaður áréttar einnig, vegna svara dómsmálaráðherra, að það sé ekki samræmanlegt við fyrirmæli stjórnarskrárinnar og laga að afgreiða mikilvægt stjórnarmálefni og hrinda því í framkvæmd og ætla að bera það upp í ríkisstjórn eftir á. Hann segir mikilvægt að horfa til markmiðs umræddra regla og þeirra krafa um vandaða stjórnsýsluhætti sem af því leiðir. „Er í því sambandi óhjákvæmilegt að horfa til þess að þér, sem forsætisráðherra og forystumaður ríkisstjórnarinnar, höfðuð sérstaklega óskað eftir því við ráðherrann að málið yrði tekið fyrir á fundi hennar,“ segir Skúli í erindi sínu til Katrínar. „Af skýringum yðar fæ ég vart annað ráðið en að ljóst hafi mátt vera að umræða um málið á þeim vettvangi væri ekki eingöngu ætlað að vera hreint formsatriði þótt í sjálfu sér lægi fyrir að dómsmálaráðherra nyti stjórnskipulegrar heimildar til ákvörðunar sinnar.“ Umboðsmaður lýsir sig ósammála þeirri skoðun sem fram kemur í svörum forsætisráðherra við upphaflegu erindi hans að vandséð sé að lengra verði gengið í sérstöku verklagi viðvíkjandi því hvort og hvernig mál ráðherra séu borin upp í ríkisstjórn. Ríkisstjórnin geti þvert á móti afmarkað það betur, líkt og fram kemur í athugasemdum með frumvarpi að lögum nr. 115/2011 um Stjórnarráð íslands. Þá sé einnig hægt að horfa til breytinga á siðareglum ráðherra, þar sem ekkert er fjallað um samvinnu og samskipti ráðherra sín á milli. Bréf Umboðsmanns Alþingis til forsætisráðherra.
Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Umboðsmaður Alþingis Rafbyssur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira