Fótbolti

Kári: Hefur verið það skemmti­legasta sem ég hef gert á lífs­leiðinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
England v Iceland - UEFA Nations League - Group A2 - Wembley Stadium England's Mason Mount (left) and Iceland's Kari Arnason battle for the ball during the UEFA Nations League match at Wembley Stadium, London. (Photo by Neil Hall/PA Images via Getty Images)
England v Iceland - UEFA Nations League - Group A2 - Wembley Stadium England's Mason Mount (left) and Iceland's Kari Arnason battle for the ball during the UEFA Nations League match at Wembley Stadium, London. (Photo by Neil Hall/PA Images via Getty Images) Neil Hall/Getty Images

Kári Árnason, fyrirliði Íslands á Wembley í kvöld í 4-0 tapinu gegn Englandi, segir að það sé ljóst að þetta hafi verið hans síðasti landsleikur.

„Ég held að það sé alveg klárt að þetta hafi verið minn síðasti leikur. Þetta var ekki góður fyrri hálfleikur. Við komumst ekki nálægt þeim. Þeir eru með hörkulið,“ sagði Kári.

„Það er erfitt þegar fimm til sex leikmenn stíga út að keyra þetta á svona þreyttu liði. Það verður til þess að við komumst ekki nálægt mönnum. Þetta verður erfitt og þegar við missum mann útaf þá var þetta vonlaust case,“ en hefði átt að fá fleiri frískar fætur inn?

„Hvar ætlaru að finna þær? Var U21 ekki að spila fyrir þremur dögum? Það getur endað mjög illa að henda ungum strákum fyrir lestina. Þú vilt ekki byrja þeirra landsliðsferil á því. Frekar að gefa þeim smjörþefinn.“

„Þetta eru klaufaleg mörk. Jack Grealish er rosalega leikinn og maður á ekki að vera teygja sig í boltann í kringum hann. Þú verður frekar að reyna screena af sér en Gulli brýtur klaufalega af sér. Þegar menn eru þreyttir þá gera menn svona mistök en við verjum aukaspyrnunni ekki vel. Íslenska liðið á ekki að hleypa svona mörkum inn.“

„Ég var ekki að gera honum neinn greiða með að spila hann réttstæðann. Ég sá ekki hvort að það var snerting eða ekki. Svo ég verð að sjá það aftur.“

Eins og mikið hefur verið rætt og ritað um var þetta líklega síðasti leikur Kára og hann setur síðustu daga og tilfinningu sína eftir leikinn í kvöld í orð.

„Ég tók tilfinningarskalann út eftir Ungverjalands leikinn. Að þetta væri að líða undir lok. Ég vonaðist til þess að fá að spila minn síðasta leik á Wembley og fékk það. Þetta er end of an era. Ég hefði helst viljað hafa allt gamla bandið inn á vellinum.“

„Það er erfitt að kveðja þessa stráka og hugsa til þess að fá aldrei aftur að spila aftur með þessum strákum. Þetta hefur verið það skemmtilegasta sem ég hef gert á lífsleiðinni og eitthvað sem ég brann fyrir. Ég gerði allt í mínu valdi stendur til þess að þetta lið yrði „successful“,“ sagði meir Kári að leikslokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×