Þungunarrofsbannið í Texas fær enn að standa Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2021 09:37 Frá mótmælum kvenna gegn þungunarrofsbanninu í Houston í Texas í byrjun október. AP/Houston Chronicle/Melissa Phillip Umdeilt þungunarrofsbann í Texas fær áfram að standa þrátt fyrir að það virðist stríða gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir að alríkisdómstóll hafnaði kröfu dómsmálaráðuneytisins um að fella það úr gildi tímabundið í gær.
Þungunarrof er í reynd bannað eftir sjöttu viku meðgöngu með lögum sem tóku gildi í Texas í byrjun september. Þrátt fyrir að slíkt bann hafi fram að þessu verið talið stríða gegn stjórnarskrá leyfði Hæstiréttur Bandaríkjanna lögunum að taka gildi vegna lagatæknilegra álitamála. Þingmenn í Texas sömdu lögin sérstaklega með það fyrir augum að erfitt yrði að fella þau úr gildi fyrir dómstólum. Það gerðu þeir með því að banna yfirvöldum í Texas að framfylgja banninu en fela í staðinn almennum borgurum að kæra hvern þann sem aðstoðar konu að fara í þungunarrof. Því sé óljóst hvenær og hvernig hægt sé að láta reyna á lögmæti laganna fyrir dómi. Málið hefur velkst um fyrir dómstólum undanfarnar vikur. Dómsmálaráðuneytið krafðist þess að lögin yrðu felld úr gildi tímabundið og féllst dómstóll á hana á dögunum. Annað dómstig felldi þann úrskurð úr gildi. Nú hefur alríkisáfrýjunardómstóll hafnað kröfu ráðuneytisins um að ógilding laganna verði staðfest, að sögn Washington Post. Reikna má með því að niðurstöðunni verði áfrýjað til hæstaréttar. Í millitíðinni hefur þungunarrof nær algerlega lagst af í Texas sem er eitt fjölmennasta ríki Bandaríkjanna þrátt fyrir að enginn dómstóll hafi enn tekið efnislega afstöðu til þess hvort að lögin standist stjórnarskrá. Dómafordæmi hæstaréttar hefur tryggt konum rétt til þungunarrofs áður en fóstur er orðið lífvænlegt, venjulega fram að 22. til 24. viku meðgöngu.
Bandaríkin Þungunarrof Tengdar fréttir Þungunarrofslögin taka aftur gildi í Texas Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum heimilaði í gær Texasríki að halda lögum um þungunarrof til streitu, en tveimur dögum áður hafði alríkisdómari fellt lögin úr gildi. 9. október 2021 11:37 Alríkisdómari frestar gildistöku laga gegn þungunarrofi Alríkisdómarinn Robert L. Pitman hefur staðfest beiðni bandaríska dómsmálaráðuneytisins um að fresta gildistöku afar umdeildrar löggjafar í Texas, sem bannar þungunarrof eftir sjöttu viku meðgöngu. 7. október 2021 08:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira
Þungunarrofslögin taka aftur gildi í Texas Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum heimilaði í gær Texasríki að halda lögum um þungunarrof til streitu, en tveimur dögum áður hafði alríkisdómari fellt lögin úr gildi. 9. október 2021 11:37
Alríkisdómari frestar gildistöku laga gegn þungunarrofi Alríkisdómarinn Robert L. Pitman hefur staðfest beiðni bandaríska dómsmálaráðuneytisins um að fresta gildistöku afar umdeildrar löggjafar í Texas, sem bannar þungunarrof eftir sjöttu viku meðgöngu. 7. október 2021 08:01