Arnar Guðjónsson um leikbannið: Séríslenskt að þjálfari fari alltaf í leikbann fyrir að vera vikið út úr húsi Andri Már Eggertsson skrifar 26. janúar 2023 21:00 Arnar Guðjónsson var ekki á hliðarlínunni gegn ÍR í kvöld Vísir/Hulda Margrét Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki á hliðarlínunni þar sem hann var í leikbanni. Arnar tjáði sig um leikbannið og að hans mati er regluverkið ósanngjarnt gagnvart þjálfurum. „
Ég var mjög ánægður með sigurinn. Þetta var mikilvægur sigur og nú eigum við innbyrðis viðureignina á ÍR og erum með forskot í töflunni. Þessi botnbarátta á eftir að vera mjög jöfn og þessi sigur gefur okkur bæði andrými og betri möguleika á að komast í úrslitakeppnina,“ sagði Arnar Guðjónsson eftir leik. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og Stjarnan var einu stigi yfir í hálfleik. Stjarnan vann hins vegar seinni hálfleik með sautján stigum sem gladdi Arnar Guðjónsson. „Mér fannst við frákasta betur og töpuðum ekki jafn mörgum boltum ásamt því spiluðum við betri vörn. Hákon [Örn Hjálmarsson] spilaði eins og Kobe Bryant í fyrri hálfleik. Hann gerði þetta líka í bikarnum en okkur tókst að stoppa hann í seinni hálfleik sem breytti miklu.“ Arnar Guðjónsson var ekki á hliðarlínunni í leiknum þar sem hann var dæmdur í leikbann vegna framgöngu sinnar gegn Keflavík í síðustu umferð. „Það var rétt að mér var vikið út úr húsi þar sem við fengum þrjár tæknivillur á bekkinn. Ég hef verið að tala um fullt af reglum upp á síðkastið. Mér finnst leikbönn beint á þjálfara fyrir brottrekstur ekki rétt þar sem það er ekki regla frá FIBA heldur séríslenskt. Í Finnlandi og Svíþjóð þá gerist ekkert og þú þjálfar næsta leik en stundum ertu sektaður. Nema þú farir alveg yfir strikið þá ferðu í leikbann.“ „Þetta fer að verða rútína þar sem ég held að þetta sé í fjórða skipti sem ég fer í leikbann og við vinnum alltaf leikinn.“ Arnar hafði ekki hugmynd um það hvers vegna regluverkið er öðruvísi á Íslandi heldur en í nágrannalöndum. „Ég er körfuboltaþjálfari ekki lögfræðingur. Ég hef ekki hugmynd um það. Mér finnst þetta áhugaverður samanburður og ég hef nefnt þetta. Skítt með þjálfara en með leikmenn þá fá þeir áminningu og síðan bann ef þeim er vikið út úr húsi. Sú regla er sett þegar það var erfiðara að fá tæknivillu og óíþróttamannslega villu. Það er búið að lækka vægi á tæknivillu með einu vítaskoti. Ef til dæmis Hlynur Bæringsson verður óheppinn og fær tvær tæknivillur í næsta leik þá uppsker hann leikbann sem er eitthvað sem þarf að skoða.“ Armani Moore, Bandaríkjamaður Stjörnunnar, er ekki kominn með leikheimild þar sem sakavottorðið hans hefur ekki skilað sér. „Það er mjög gott að þú hafir trú á því að ég viti hvernig útlendingastofnun virkar. Ég hef ekki grænan. Hann hlýtur að fara fá leikheimild þar sem þetta er búið að vera helvíti langur tími og þetta hlýtur að koma að því að hann fái að kasta og grípa með okkur,“ sagði Arnar Guðjónsson léttur að lokum.
Stjarnan Subway-deild karla Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Handbolti Fleiri fréttir „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Dagskráin í dag: Formúlan, NBA, ítalski og PGA-meistaramótið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri Zlatan sendi Fury kveðju: „Njóttu bardagans og vertu viss um að vinna hann“ Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Gríðarmikill fögnuður þegar Scheffler mætti á völlinn Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Sjá meira
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn