Handbolti

Enginn er annars hornabróðir í leik: Valdimar Gríms hellti sér yfir Bjarka Má

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már Elísson vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar Valdimar Grímsson hellti sér yfir hann.
Bjarki Már Elísson vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar Valdimar Grímsson hellti sér yfir hann. vísir/vilhelm

Gamla Valshetjan Valdimar Grímsson lét Bjarka Má Elísson, leikmann Lemgo, heyra það eftir að Björgvin Páll Gústavsson fékk rautt spjald í leik liðanna á Hlíðarenda í gær. Lemgo vann leikinn með eins marks mun, 26-27.

Björgvin Páll var rekinn af velli á 23. mínútu eftir að hafa lent á Bjarka þegar hann skoraði úr hraðaupphlaupi.

Bjarki fékk smá skurð á nefið og þurfti aðhlynningu. Hann var ekki sáttur með samherja sinn í landsliðinu og tók ekki undir afsökunarbeiðni hans. Þeir skildu þó sáttir á endanum og í viðtali við Vísi sagði Bjarki að Björgvin hefði líklega ekki átt að fá rauða spjaldið.

„Ég er ekki viss um hvort þetta átti að vera rautt spjald. Ég fór í hraðaupphlaup, hoppa í gegn og fékk einhvern líkamspart af honum í nefið á mér. Ég er ekki viss hvar hann stóð og hvar ég stóð, þannig ég á erfitt að segja til um hvort þetta hefði átt að vera rautt spjald,“ sagði Bjarki.

„Í hita leiksins hreytti ég aðeins í Björgvin sem var ekki rétt að gera. Það eru miklar tilfinningar í þessu. Það er skrítið að koma heim og spila verandi að tapa. Við erum sáttir. Ég elska Björgvin Pál.“

Valdimar var í stúkunni á Hlíðarenda í gær og fylgist með sínu gamla liði. Hann var virkilega ósáttur við rauða spjaldið og þegar Bjarki var við varamannabekk Lemgo lét Valdimar hann heyra það og virtist ansi heitt í hamsi.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á leiknum í gær og náði þessum myndum af reiðilestri Valdimars.

vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm

Mynd af atvikinu, þegar Bjarki og Björgvin lentu í samstuðinu, má sjá hér fyrir neðan.

Bjarki Már fékk smá skurð en Björgvin Páll rauða spjaldið.vísir/vilhelm

Bjarki lék einkar vel í leiknum í gær og var markahæstur á vellinum með níu mörk. Hann skoraði meðal annars síðustu þrjú mörk Lemgo af vítalínunni.

Valur og Lemgo mætast öðru sinni í Þýskalandi eftir viku. Sigurvegarinn í einvíginu kemst í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Eins og sjá má skildu Björgvin Páll og Bjarki Már sáttir.vísir/vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×