Gengið hefur verið frá kaupsamningi vegna sölu Símans á Mílu til sjóðs franska félagsins Ardian samkvæmt tilkynningu frá Símanum . Lífeyrissjóðum er boðið að eignast allt að 20% hlut í Mílu með beinni þátttöku eða í gegnum innlenda fjárfestingarsjóði. Kaupin eru háð um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Heildarvirði Mílu í viðskiptunum (e. Enterprise value) er 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu sem Ardian yfirtekur. Þá fær Síminn greidda 44 milljarða króna í reiðufé þegar kaupin verða að fullu frágengin og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður Símans er rúmlega 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Þá losi kaupin um samkeppnishömlur sem eftirlitsstofnanir hafi haft áhyggjur af vegna einarhaldi Símans á Mílu. Auk þess er samstarf við Seðlabankann boðað svo greiðsla kaupverðsins hafi sem minnst áhrif á gengi krónunnar.

Í tilkynningunni er bent á að eftir söluna verði lausafjárstaða Símans sterk sem og geta til innri og ytri vaxtar. „Stjórn og framkvæmdastjórn Símans munu vinna að tillögu um ráðstöfun söluandvirðisins sem verður kynnt hluthöfum gangi viðskiptin eftir," segir í tilkynningunni.

Boða hraðari ljósleiðara- og 5G-væðingu

Að kaupunum loknum hyggst Ardian hraða fjárfestingarverkefnum Mílu samkvæmt tilkynningunni. Sérstök áhersla verði lögð á að leggja ljósleiðara í sveitarfélögum á landsbyggðinni og byggja upp 5G farsímakerfi á Íslandi með tæknibúnaði frá sænska framleiðandanum Ericsson.

Sjá einnig: Stýrt af einni valdamestu konu heims

Ardian er eitt stærsta sjóðsstýringafyrirtæki Evrópu með um 114 milljarða Bandaríkjadala í stýringu. Meðal fjárfesta í Ardian eru ríkisstofnanir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög og stofnanafjárfestar. Innviðadeild Ardian, Ardian Infrastructure, er undanfarið sögð hafa lagt aukna áherslu á fjárfestingar í stafrænum innviðum, auk orku- og samgönguinnviða.

Orri Hauksson, forstjóri Símans:

„Við fögnum komu reynslumikils fjárfestis á borð við Ardian í íslenska fjarskiptageirann. Orðspor og þekking Ardian á uppbyggingu og langtíma rekstri á afburða innviðum víða um heim fyllir okkur trausti á bjartri og öruggri framtíð þessara grundvallarinnviða á Íslandi. Þetta á sérstaklega við um landsbyggðina. Ardian hefur metnaðarfull áform um að hraða ljósleiðaravæðingu og 5G þjónustu um land allt. Við eigum í viðræðum við stjórnvöld um að koma á fót virkum samráðsvettvangi, þar sem hægt er að deila upplýsingum og leggja grunn að uppbyggilegu samstarfi um ýmsa mikilvæga innviði landsins, stýringu þeirra í íslenskri lögsögu og þjóðaröryggi þeim tengdum."

Dr. Daniel von der Schulenberg, framkvæmdastjóri og yfirmaður Ardian Infrastructure fyrir Þýskaland, Benelux-löndin og Norður-Evrópu:

„Við erum þakklát fyrir það tækifæri að fjárfesta á Íslandi og hlökkum til að vinna náið með innlendum samstarfsaðilum okkar. Norðurlöndin eru kjarnasvæði fyrir Ardian innviðateymið. Þar eru sterk grunngildi, vel menntað starfsfólk og sterkir innviðir sem gerir svæðið sérstaklega áhugavert. Míla er langtímafjárfesting og vettvangur til vaxtar fyrir okkur. Við hyggjumst fjárfesta jafnt og þétt í sterkari útbreiðslu fjarskiptainnviða og hlökkum til að veita áfram hágæða þjónustu og tengingar. Við munum vinna náið með stjórnunarteymi Mílu að uppbyggingu enn framsæknara fjarskiptafyrirtækis. Við hlökkum einnig til samstarfs við Símann sem mikilvægs framtíðar viðskiptavinar og íslensku lífeyrissjóðina sem meðeigenda okkar í Mílu."

Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu:

„Um leið og þetta er mikil viðurkenning fyrir það starf sem unnið hefur verið hjá Mílu undanfarin ár eru þetta feikilega spennandi tímamót fyrir félagið. Stjórnvöld hafa lengi haft þá stefnu að ljúka þurfi háhraðanetstengingu um allt land en á sama tíma sagt óleyst hvernig það verði gert. Míla hefur lýst því yfir að félagið hyggist gera það. Um 13.000 staðföng í bæjum og þorpum á landsbyggðinni eru án ljósleiðaratenginga. Það er stefna nýrra eigenda Mílu að hraða uppbyggingu til þessara staða. Ljósleiðaravæðing er eitt stærsta byggðamál Íslands og Ardian hefur fjármuni og Míla þekkingu sem þarf til að láta verkin tala í þessum efnum. Uppbygging 5G farsímanets er annað umfangsmikið verkefni sem farið er af stað auk þess sem fjarskiptaöryggi er stórt atriði sem þarf að tryggja. Það er því mjög gleðilegt að fá svona fjársterkan aðila í þessi mikilvægu verkefni. Míla sem sjálfstætt fyrirtæki með öfluga eigendur mun verða enn sterkari en áður og fullbúið til að takast á við þessar áskoranir sem framundan eru í að efla enn frekar íslenska fjarskiptainnviði."