250 sýni voru tekin í dag á Reyðarfirði en í morgun voru tíu Covid-smit staðfest í grunnskóla Reyðarfjarðar.
Lögreglan á Austurlandi greinir frá því á Facebook að niðurstöður úr greiningu sýna er að vænta síðar í kvöld.
„Mikilvægt er að allir þeir sem fóru í sýnatöku í dag haldi sig heima þangað til að niðurstöður hafa borist. Þá er vinna smitrakningateymisins í fullum gangi og mun halda áfram í kvöld þegar að niðurstöður úr sýnatökunni liggja fyrir.“
Þá segir að mikilvægt sé að bæði leik- og grunnskólabörn á Reyðarfirði séu ekki að hittast utan skóla.
Viðbúið er að töluverður fjöldi farið í sóttkví, bæði leik- og grunnskólabörn ásamt starfsfólki á báðum stöðum.