Kelloggs tapaði og talið „minna hollt“

Kelloggs tapaði í Hæstarétti Bretlands. Fyrirtækið framleiðir meðal annars Rice …
Kelloggs tapaði í Hæstarétti Bretlands. Fyrirtækið framleiðir meðal annars Rice Krispies.

Morgunkornsrisinn Kelloggs tapaði í dag í Hæstarétti í Bretlandi, þar sem fyrirtækið mótmælti reglum sem breska ríkið setti framleiðendum til þess að takmarka sykurmagn í von um að minnka offitu barna. 

Kelloggs, sem framleiðir einnig Rice Crispies, mótmælti aðferðum sem stjórnvöld notuðu til þess að mæla salt, fitu- og sykurmagn í morgunkorni þegar það er borðað eintómt. 

Næringargildi núlli ekki út sykurmagn

Hæstiréttur sló því föstu að morgunkorn gætu verið hluti af heilbrigðu mataræði en næringargildi þess réttlætti ekki of mikið salt, fitu- eða sykurmagn. Slíkt hafi ennþá slæm áhrif á heilsu barna. 

Um 54,7% af morgunkorni Kelloggs verður sett í flokk með „minna hollum“ matvælum, samkvæmt reglunum sem taka gildi í október. Kelloggs sagði þá fyrir rétti að breytingin myndi skerða tekjur um fimm milljónir punda eða 831 milljónir íslenskra króna á ársgrundvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert