Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Kristján Már Unnarsson skrifar 21. júní 2022 21:30 Hvalbátarnir í Reykjavíkurhöfn í dag. Hvalabyssurnar eru komnar á sinn stað. Egill Aðalsteinsson Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför.
Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt frá umstangi í hvalbátunum í Reykjavíkurhöfn í dag en það var haustið 2018 sem þeir veiddu síðast stórhveli við strendur Íslands. En nú er komið að því að leysa landfestar þeirra á ný. Hvalabyssurnar eru komnar á stefni bátanna, tilbúnar í verkefnið, en þær voru prófaðar úti á sjó í síðustu viku. Spjallað við skipverja á dekkinu á Hval 8 í dag.Egill Aðalsteinsson Þegar við brugðum okkur um borð í hádeginu var þar ys og þys, okkur var sagt að allir skipverjar væru mættir en þrettán manns eru í áhöfn hvors skips. Einnig var þar starfsfólk ýmissa þjónustaaðila að dytta að ýmsu. Á þilfarinu á Hval 8 hittum við hásetann Guðmund Þorlák Guðmundsson, sem segist eiga nokkrar hvalvertíðar að baki. -Er tilhlökkun í ykkur? „Það er alltaf þegar það er vertíð framundan.“ Guðmundur Þorlákur Guðmundsson, háseti á Hval 8.Egill Aðalsteinsson -Hvað eruð þið að gera núna? „Við erum náttúrlega bara að gera klárt.“ -En er kominn endanlegur tími á hvenær þið farið? „Við reiknum með að það sé á morgun,“ svarar Guðmundur Þorlákur. Björn Sigmundsson vélstjóri er að fara á sína fyrstu hvalvertíð en hann segist hafa verið sjómaður allt sitt líf. -Hvernig stendur á því að menn gerast hvalveiðisjómenn, eigum við að segja, á gamals aldri? „Þetta er svo spennandi. Þetta er svo sérstakt að fara að keyra gufuvélar. Það er málið. Stóra málið,“ svarar Björn, sem er 2. vélstjóri á Hval 8. Björn Sigmundsson er 2. vélstjóri á Hval 8.Egill Aðalsteinsson Skipverjar virtust þó ekki hafa staðfestar upplýsingar um hvort haldið yrði til hafs á morgun. Forstjóri Hvals svaraði heldur ekki fyrirspurn fréttastofu í dag um upphaf hvalvertíðar en hvalveiðikvótinn heimilar veiðar á allt að 193 langreyðum í ár. -Hvenær býstu við að fyrsti hvalur verði skutlaður? „Ég veit það ekki, nei.“ -En þið búist við að halda út á morgun? „Já,“ svarar Björn vélstjóri. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hvalveiðar Sjávarútvegur Reykjavík Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Fólk sniðgangi ferðalög til Íslands vegna hvalveiða Könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands leiðir í ljós að meirihluti landsmanna, eða um 65 prósent, telja hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir kominn tími til að stjórnvöld taki mark á þeim áhrifum sem hvalveiðar hafi á ferðaþjónustuna í landinu. 16. júní 2022 11:53 Umsjónarmaður hvalbáta segir starfsmenn Hvals ekkert eldast Tilhlökkun er í starfsmönnum Hvals hf. að hefja hvalveiðar á ný eftir fjögurra ára hlé. Í dag var hvalbátnum Hval 9 rennt úr slipp eftir klössun og Hvalur 8 dreginn upp í staðinn. 26. apríl 2022 22:02 Hvalveiðikvótinn heimilar veiðar á 193 langreyðum Fátt virðist geta komið í veg fyrir að stórhvalaveiðar hefjist að nýju við Ísland í sumar eftir fjögurra ára hlé. Heimilt er að veiða hátt í tvöhundruð langreyðar í ár og Hvalur hf. er auk þess með fullgilt vinnsluleyfi í hvalstöðinni í Hvalfirði. 23. mars 2022 20:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Fólk sniðgangi ferðalög til Íslands vegna hvalveiða Könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands leiðir í ljós að meirihluti landsmanna, eða um 65 prósent, telja hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir kominn tími til að stjórnvöld taki mark á þeim áhrifum sem hvalveiðar hafi á ferðaþjónustuna í landinu. 16. júní 2022 11:53
Umsjónarmaður hvalbáta segir starfsmenn Hvals ekkert eldast Tilhlökkun er í starfsmönnum Hvals hf. að hefja hvalveiðar á ný eftir fjögurra ára hlé. Í dag var hvalbátnum Hval 9 rennt úr slipp eftir klössun og Hvalur 8 dreginn upp í staðinn. 26. apríl 2022 22:02
Hvalveiðikvótinn heimilar veiðar á 193 langreyðum Fátt virðist geta komið í veg fyrir að stórhvalaveiðar hefjist að nýju við Ísland í sumar eftir fjögurra ára hlé. Heimilt er að veiða hátt í tvöhundruð langreyðar í ár og Hvalur hf. er auk þess með fullgilt vinnsluleyfi í hvalstöðinni í Hvalfirði. 23. mars 2022 20:51