Innlent

Í­búar höfuð­borgar­svæðisins sjá aftur til sólar í vikunni

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Von er á blíðskaparveðri á höfuðborgarsvæðinu í næstu viku.
Von er á blíðskaparveðri á höfuðborgarsvæðinu í næstu viku. Vísir/Vilhelm

Veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir að veðurblíðan á Norðausturlandi sé að síga á seinni hlutann. Hinsvegar fari hitatölur hækkandi á höfuðborgarsvæðinu.

Blíðskaparveður hefur verið á norður- og austurhluta landsins síðustu vikur, á meðan hefur verið heldur lágskýjað á höfuðborgarsvæðinu. Margir Íslendingar hafa flykkst þvert yfir landið til þess að elta sólargeislana og eru fullbókuð tjaldstæði til vitnisburðar um það.

Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir þó spá næstu viku sýni fram að bjartari daga og hækkandi hitatölur á höfuðborgarsvæðinu, á meðan kólna fer á norður- og austurlandi.

Svona lítur veðurspáin út fyrir miðvikudaginn í næstu viku.Veðurstofa Íslands

„Það er ágætis breyting frá því sem verið hefur fyrir okkur sem erum hér á suðvesturhorninu að sjá til sólar aftur. En það verður hins vegar svona þungbúnara og grárra veður komið á Norður- og Austurland. Enda eru þeir búnir að fá rúman mánuð af góðu veðri þannig það er nú alveg kominn tími á að þeir fari að skila einhverju til okkar aftur.“

Enn sé of langt í verslunarmannahelgi til þess að veðurspáin fyrir hana sé traust, en útlit sé fyrir frekar rólegt veður um land allt. Ekkert óveður sé í kortunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×