Þórólfur hefði viljað draga úr aðgengi ferðamanna að landinu hefði Íslensk erfðagreining ekki komið til hjálpar Birgir Olgeirsson skrifar 6. ágúst 2020 18:40
Íslensk erfðagreining ætlar að aðstoða Landspítalann við skimanir vegna mikils álags. Sóttvarnalæknir hefði lagt til að dregið yrði úr aðgengi ferðamanna að Íslandi hefði fyrirtækið ekki hlaupið undir bagga. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir stöðu faraldursins ógnvekjandi. Sóttvarnalæknir hefur skilað minnisblaði til heilbrigðisráðherra þar sem hann leggur til að farþegar verði skimaðir áfram á Landamærunum. Afkastageta veirufræðideildar Landspítalans er í hámarki. Íslensk erfðagreining mun taka hluta sýnanna og létta á deildinni þar til afkastagetan eykst í október. „Það þýðir að það verður hægt að anna þeim fjölda ferðamanna sem er að koma til landsins ef það verður ekki veruleg aukning,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Ef Íslensk erfðagreining hefði ekki stigið inni hefðu aðeins tvær leiðir verið í stöðunni. „Þá hefði annað hvort þurft að minnka aðgengi að Íslandi eða auka skimunargetuna á landamærunum,“ segir Þórólfur. Hefði Íslensk erfðagreining ekki hlaupið undir bagga hefði þá þurft að stiga einhver skref til baka varðandi skimanir á landamærunum? „Ég veit það ekki, mínar tillögur hefðu hljóðað þannig en síðan er það ráðamanna að ákveða hvað verður gert,“ segir Þórólfur. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir fyrirtækið ætla að létta undir eins og hægt er. Fyrirtækið geti unnið úr 5.000 sýnum á dag en meta þurfi þörfina. „Síðan er það hitt, hvernig mun þessi faraldur þróast núna. Því mér finnst þetta persónulega svolítið ógnvekjandi. Við erum komin með 28 einstaklinga sem ekki hafa verið tengdir saman sem hafa smitast af veirunni með sama stökkbreytingamynstrið,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Þessar hópsýkingar gætu þróast í meiriháttar faraldur eða horfið að mati Kára. Sú þróun muni ráða þörfinni. Kári býst ekki við að fyrirtækið þurfi að aðstoða Landspítalann lengi. „Við getum lánað aðstöðu og tæki og svolítinn mannskap en þetta kemur til með að verða áfram verkefni Landspítalans.“ Fjórir greindust með veiruna innanlands í gær. 97 eru nú í einangrun og 795 í sóttkví.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Fleiri fréttir Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Sjá meira