Alvarlegt að fyrirtækin geti ekki framleitt með verðin í hæstu hæðum Snorri Másson skrifar 11. janúar 2022 12:10 Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar. Vísir Forstjóri Landsvirkjunar kveðst taka það alvarlega að verið sé að skerða afhendingu orku til fyrirtækja sem vildu gjarna vera að keyra á fullum afköstum. Þá þurfi að virkja
meira
Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar hefur ekki verið lakari í sjö ár. Það hefur einfaldlega ekki rignt nóg, og þar sem ekki ekki er nægt vatn í lónunum til að knýja virkjanir þarf Landsvirkjun að skerða raforku til stórnotenda, sem er mikið óyndisúrræði. „Þetta er náttúrulega staða sem við þekkjum að geti komið upp. Þegar maður rekur kerfi þar sem orkan er 100% endurnýjanleg er algerlega ljóst að það geta komið upp aðstæður eins og núna. Þetta er náttúrulega háð duttlungum náttúrunnar. En við tökum þetta mjög alvarlega og gerum okkur grein fyrir því að þetta er óhentugt fyrir okkar viðskiptavini. Þetta kemur náttúrulega ekki vel við þeirra rekstur, sérstaklega af því að álverð og kísilverð eru há núna og það myndi henta þeim að keyra á fullum afköstum,“ segir Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar. Byggja þurfi frekari virkjanir Staðan í orkubúskapnum sé til marks um að ef hér eigi að ráðast í orkuskipti, þurfi að virkja meira. „Þessi breytilegi vatnsbúskapur er hlutur sem við þekkjum alveg. En það sem ýkir áhrifin núna, þegar þetta er komið af fótum fram er að kerfið er fulllestað og hefur verið fulllestað alveg frá miðju síðasta ári. Og við erum að horfa á áframhaldandi vöxt vegna orkuskipta og áhugaverðra tækifæra í grænum iðnaði, eins og matvælaiðnaði og gagnaverum og öðru. Við þurfum að mæta þeirri auknu eftirspurn, annars lendum við í vandræðum með kerfið. Við þurfum að mæta henni með því að byggja frekari virkjanir og líka að hrinda í framkvæmd styrkingu á flutningskerfinu,“ segir Hörður. „Það byggir bara ekki á staðreyndum“ Landsvirkjun er með virkjanamöguleika á teikniborðinu, Hvammsvirkjun í Þjórsárdal, stækkun á Þeistareykjum og aðgerðir við Blönduveitu. Þá séu vindorkugarðar til skoðunar við Búrfell og Blöndu. „Það sem maður sér hjá ríkisstjórninni er þessi mikla áhersla á orkuskiptin. Og ég held að það sé mikill skilningur á því að hljóð og mynd þurfa að fara saman. Ef við ætlum að fara í þessi orkuskipti liggja fyrir greiningar sem sýna að það þarf umtalsvert magn af orku.“ Náttúruverndarsamtök á borð við Landvernd hafa sagt að ekki skorti orku í landinu; frekar eigi að vernda hálendi Íslands. Þar hafa samtökin bent á að 80% þeirrar raforku sem nú sé framleidd fari til stóriðju. Þá hefur stjórn Landverndar sagt að fara þurfi mjög varlega í uppbyggingu vindorkuvera og sagt að sitjandi ríkisstjórn sé að skipuleggja undanhald í verndun hálendis Íslands. Hvað segirðu við því sem einnig er haldið fram að það þurfi raunar ekkert að virkja hér heldur sé hægt að nota það sem við eigum þegar? „Það byggir bara ekki á staðreyndum. Kerfið er fullnýtt núna og það eru bara bindandi samningar um þá orku. Á sama tíma hefur samfélagið miklar væntingar um áframhaldandi þróun, sérstaklega í orkuskiptum. Það er ekki framkvæmanlegt nema það sé aukin orkuvinnsla,“ segir Hörður.
Orkuskipti Orkumál Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Tengdar fréttir Hver á að gæta íslenskrar náttúru? Í Kastljósi á mánudagskvöld sat forsætisráðherra nýrrar ríkisstjórnar fyrir svörum um nýjan stjórnarsáttmála. Hún var meðal annars spurð út í algjöra fjarveru náttúruverndar í sáttmálanum. Svör hennar voru mikil vonbrigði fyrir náttúruverndarfólk. 3. desember 2021 09:01 Sáttmálinn fellur í misgóðan jarðveg Það er mjög jákvætt að styrkja eigi þjóðarsjúkrahúsið segir forstjóri Landspítalans um nýjan stjórnarsáttmála. Framkvæmdastjóri Landverndar segir hins vegar náttúru Íslands fjarverandi í sáttmálanum. Formaður öryrkja ætlar að reyna að vera bjartsýnn. 29. nóvember 2021 19:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Hvers konar „motherfucking“ óþverri væri þessi guð ef hann er til“ Innlent Maðurinn ríkisborgari Möltu Innlent Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Innlent Fleiri fréttir Þurfi gera úrbætur en ástandið verið íkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Hvar eru Illugi Jökuls, Hallgrímur Helga, Atli Þór Fanndal? „Hvers konar „motherfucking“ óþverri væri þessi guð ef hann er til“ Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Vaknaði og barnið var horfið Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Meint frelsissvipting, brottvísun og vöggustofubörn Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Sjá meira
Hver á að gæta íslenskrar náttúru? Í Kastljósi á mánudagskvöld sat forsætisráðherra nýrrar ríkisstjórnar fyrir svörum um nýjan stjórnarsáttmála. Hún var meðal annars spurð út í algjöra fjarveru náttúruverndar í sáttmálanum. Svör hennar voru mikil vonbrigði fyrir náttúruverndarfólk. 3. desember 2021 09:01
Sáttmálinn fellur í misgóðan jarðveg Það er mjög jákvætt að styrkja eigi þjóðarsjúkrahúsið segir forstjóri Landspítalans um nýjan stjórnarsáttmála. Framkvæmdastjóri Landverndar segir hins vegar náttúru Íslands fjarverandi í sáttmálanum. Formaður öryrkja ætlar að reyna að vera bjartsýnn. 29. nóvember 2021 19:02