Nýir starfsmenn á öldrunarheimilum á Akureyri verða ráðnir inn á verri kjörum en aðrir. Starfsmönnum öldrunarheimila þar á bæ brá heldur betur í brún þegar N4 birti viðtal við Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri, á þriðjudag þar sem fram kom að starfsmenn öldrunarheimila verði á öðrum kjarasamningum þegar einkahlutafélagið Heilsuvernd hjúkrunarheimili tekur við rekstri þeirra nú í byrjun maí.
Helga Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri öldrunarhjúkrunar á Akureyri, segir í samtali við Stundina að í fréttir af málinu hafi valdið misskilningi á meðal starfsmanna. „Þeim brá,“ segir Helga. „Það varð ruglingur um að þetta ætti einnig við um þá starfsmenn sem fyrir starfa á hjúkrunarheimilum. En það er alveg ljóst að þetta nær bara til nýrra starfsmanna eða þar til nýir kjarasamningar taka gildi,“ segir Helga.
Í viðtalinu við Ásthildi á N4 kemur fram að lög um aðildaskipti tryggi að núverandi starfsmenn haldi sínum kjörum út samningstímabil gildandi kjarasamninga. „Kostnaðurinn við reksturinn lækkar …
Athugasemdir (2)