Innlent

Fréttir klukkan 18 og Belgíuleikurinn í opinni dagskrá

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gummi Ben verður á þaki Laugardalsvallar og lýsir leiknum. Sérfræðingarnir verða uppi í vesturstúkunni sem er tóm vegna samkomubanns. Myndin er frá beinni útsendingu fyrir Danmerkurleikinn á sunnudaginn.
Gummi Ben verður á þaki Laugardalsvallar og lýsir leiknum. Sérfræðingarnir verða uppi í vesturstúkunni sem er tóm vegna samkomubanns. Myndin er frá beinni útsendingu fyrir Danmerkurleikinn á sunnudaginn. Stöð 2 Sport

Fréttatími Stöðvar 2 verður sendur út klukkan 18 í kvöld, eða hálftíma fyrr en venjulega, vegna landsleiks Íslands og Belgíu í knattspyrnu. Landsleikurinn hefst klukkan 18:45, verður í opinni dagskrá á Stöð 2. Útsending hefst 18:30 eða strax að loknum fréttum og íþróttum.

Guðmundur Benediktsson lýsir leiknum.

Vegleg upphitun verður fyrir leikinn á Stöð 2 Sport frá klukkan 17:45 þar sem Kjartan Atli Kjartansson fær til sín sérfræðinga fyrir leikinn. Bjarni Guðjónsson, aðstoðarþjálfari karlaliðs KR, og Davíð Þór Viðarsson, fyrrverandi leikmaður FH, spá í spilin.

Davíð Þór er bróðir Arnars Þórs Viðarssonar sem stýrir landsliðinu í kvöld en starfslið KSÍ er sem kunnugt er í sóttkví. Ríkharð Óskar Guðnason og Hjörvar Hafliðason verða á hlaupabrautinni fyrir og eftir leik.

Hægt er að horfa á leikinn á heimasíðu Stöðvar 2. Smellið hér. Áskrifendur velja Stöð 2 Sport en aðrir geta horft á leikinn á Stöð 2 Sport kynning.

Þá verður að sjálfsögðu ítarleg textalýsing frá leiknum á Vísi.

Mikil forföll eru í íslenska liðinu því sex lykilmenn verða ekki til taks í kvöld af ýmsum ástæðum. Ísland á enn eftir að næla sér í stig í sjö leikjum í Þjóðadeildinni. Þeir hafa allir tapast og markatalan er 2-22. Ekkert lið hefur fengið á sig fleiri mörk. Hafa verður í huga að Ísland spilar í A-flokki.

Belgar eru besta fótboltalandslið í heimi samkvæmt styrkleikalista FIFA. Þeir lögðu okkar menn að velli 6-1 í fyrri leiknum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×