Aðdróttanir um að starfsmenn Vegagerðarinnar hygli fyrrum vinnustöðum fráleitar Andri Eysteinsson skrifar 6. ágúst 2020 15:50 Vegagerðin neitar ásökunum og segir gagnsæi ekki hafa skort í forvalinu. Vísir
Vegagerðin hefur gefið út yfirlýsingu eftir að kærunefnd útboðsmála felldi úr gildi ákvörðun Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar um val á þátttakendum í forvali hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvog. Sautján aðilar tóku þátt í forvalinu og voru sex þeirra valdir til frekar þátttöku í ferlinu en fimm aðilar, sem ekki komust að, kærðu niðurstöðuna í febrúar. Í kærunni var því haldið fram að tengsl tveggja starfsmanna við verkfræðistofuna Eflu hefði leitt til þess að stofan var ein þeirra sex sem urðu fyrir valinu. Þá segir í úrskurði nefndarinnar að forsendur sem ráða áttu stigagjöf undirflokka hafi verið verulega almennar og matskenndar og stuðst hafi verið við valforsendur sem ekki hafi verið upplýst um í forvalsgögnum. Vegagerðin hefur brugðist við niðurstöðunni og segir aðdróttanir um að starfsmenn Vegagerðarinnar hygli fyrrum vinnustöðum sínum vera fráleitar og úr lausu lofti gripnar. „Enda útlistar nefndin þetta einungis í yfirferð um málin en fellir ákvörðunina um valið úr gildi á þeim forsendum að um matskenndar stigagjöf sé að ræða,“ segir í yfirlýsingunni en málið snýr að tveimur fyrrum starfsmönnum Eflu en annar þeirra átti sæti í matsnefnd. Hann hafi hætt störfum hjá Eflu 2013 en hinn 2019. Sá hafi ekki átt sæti í matsnefnd heldur hafi hann komið að ákvörðun um að fylgja niðurstöðu matsnefndar ásamt fulltrúum sveitarfélaganna tveggja. Þá er bent á það í úrskurði nefndarinnar að viðurkennt sé í stjórnsýslurétti að fyrrverandi starfsmenn fyrirtækis séu ekki vanhæfir í málum er þeim við kemur. Hafna því að gagnsæi hafi skort Einnig hafnar Vegagerðin því að gagnsæi hafi skort við einkunnargjöf í forvalinu. Jafnræðis hafi verið gætt í hvívetna og mat lagt á hverja umsókn út frá málefnalegum sjónarmiðum ásamt þeim hlutlægu viðmiðum sem fram komu í skilmálum forvals. „Einkunnargjöfin var sett fram með hliðsjón af heildarmati á þeim umsóknum sem bárust og einkunn gefin í samræmi við skilmála forvalsins. Ef lýsing samsvaraði ekki kröfum forvalsgagna var einkunnin lakari en ella, sbr. skilmála forvalsins. Kærunefnd útboðsmála féllst ekki á málflutning verkkaupa í málinu og því varð niðurstaðan á þann veg að ákvörðun um val á þátttakendum skyldi felld úr gildi,“ segir í yfirlýsingu Vegagerðarinnar. Kærunefndin taldi forsenduliðina „Verktilhögun“, „Sýn á verkefnið“ og „fyrri reynsla“ vera verulega almenna og matskennda. „Að mati nefndarinnar er raunar vandséð hvernig gefa hafi átt stig fyrir það hversu vel umsóknir samsvöruðu kröfum forvalslýsingar, eins og grein 2.3 í forvalsgögnum gerði ráð fyrir, miðað við almenna lýsingu forvalsgagna um hvernig mat á umsóknum skyldi fara fram. Það er enda ljóst að þegar varnaraðilar lögðu mat á tillögur og gáfu þeim stig höfðu þeir greint þessa þrjá þætti nánar í tiltekna liði sem stig voru gefin fyrir, án þess þó að upplýst hefði verið um það í forvalsgögnum eða með öðrum hætti,“ segir í úrskurði kærunefndarinnar. Hönnunarsamkeppnin milli þeirra sex aðila sem hlutu brautargengi í janúar er ekki farin í gang og hefur umsækjendum forvalsins verið tilkynnt að ákvörðun tekin 24. Janúar hafi verið dregin til baka. „Frekari ákvörðun um framhald innkaupaferlisins verður tekin innan skamms og þátttakendum tilkynnt þar um,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Samgöngur Stjórnsýsla Borgarlína Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Fleiri fréttir „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Sjá meira