Hættur með franska landsliðinu

Raphaël Varane er hættur að leika fyrir franska landsliðið.
Raphaël Varane er hættur að leika fyrir franska landsliðið. AFP/Franck Fife

Knattspyrnumaðurinn Raphaël Varane er hættur að leika með franska landsliðinu. Tilkynnti hann um ákvörðun sína á Instagram í dag. Varane lék 93 landsleiki fyrir Frakkland og skoraði í þeim fimm mörk.  

Varane, sem er 29 ára gamall, hefur leikið með franska liðinu frá árinu 2013. Varð hann heimsmeistari með Frökkum árið 2018 og lék í úrslitaleiknum í Katar í lok síðasta árs.

Varnarmaðurinn, sem leikur með Manchester United, fylgir í fótspor markvarðarins Hugo Lloris, en Lloris, sem var fyrirliði landsliðsins, lagði landsliðshanskana á hilluna eftir heimsmeistaramótið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert