Bruce: Var kallaður heimskur og taktískt óhæfur kálhaus Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. október 2021 12:01 Steve Bruce niðurlútur á hliðarlínunni í leik Newcastle United og Tottenham á sunnudaginn. Það gæti hafa verið hans síðasti leikur á stjóraferlinum. getty/Robbie Jay Barratt Steve Bruce segir að hann gæti hætt afskiptum af fótbolta eftir tíma sinn hjá Newcastle United. Hann segir að áreitið frá stuðningsmönnum liðsins hafi tekið sinn toll af honum og fjölskyldu hans.
Í morgun var greint frá því að Bruce væri hættur sem knattspyrnustjóri Newcastle eftir rúmlega tveggja ára starf. Nýir eigendur Newcastle leita nú að nýjum stjóra. Bruce stýrði Newcastle í síðasta sinn þegar liðið tapaði fyrir Tottenham, 2-3, í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Það var þúsundasti leikur hans á stjóraferlinum og hugsanlega sá síðasti. „Ég held að þetta gæti verið mitt síðasta starf. Þetta snýst ekki bara um mig, þetta hefur líka fengið á fjölskylduna sem eru „geordies“ [fólk frá svæðinu í kringum Tyneside] og geta ekki hunsað þetta,“ sagði Bruce við Telegraph. „Þau hafa haft áhyggjur af mér, sérstaklega Jan, eiginkona mín. Hún er stórkostleg kona, mamma og amma. Hún tókst á við fráfall foreldra minna og foreldrar hennar hafa ekki verið við góða heilsu. Svo þurfti hún að hafa áhyggjur af mér og því sem ég hef gengið í gegnum síðustu árin.“ Bruce segir að stuðningsmenn Newcastle hafi verið á móti honum, allt frá því hann tók við liðinu sumarið 2019. Honum sárnaði sumt af því sem var sagt um hann. Sagður sóun á plássi „Þegar ég kom til Newcastle hélt ég að ég gæti tekist á við allt en þetta var virkilega, virkilega erfitt. Að fólk vildi mig ekki, vildi að mér mistækist, að lesa endalaust að ég myndi klúðra hlutunum, að ég væri gagnlaus sóun á plássi, heimskur, taktískt óhæfur kálhaus. Þetta var svona frá fyrsta degi,“ sagði Bruce. „Þegar úrslitin voru ágæt var talað um að fótboltinn sem við spiluðum væri glataður eða ég væri bara heppinn. Þetta var fáránlegt og alltaf í gangi, jafnvel þegar við náðum góðum úrslitum.“ Newcastle endaði í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á fyrsta tímabili Bruce við stjórnvölinn, 2019-20, og í 12. sæti á síðasta tímabili. Newcastle er núna í nítjánda og næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með þrjú stig eftir átta umferðir. Aðeins nýliðar Norwich City hafa náð í færri stig, eða tvö. Næsti leikur Newcastle er gegn Crystal Palace á Selhurst Park á laugardaginn. Greame Jones stýrir Skjórunum í þeim leik.
Enski boltinn Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Sjá meira