„Við skulum bara láta verkin tala“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. desember 2021 18:15 Jón Gunnarsson tók við sem innanríkisráðherra þegar ný ríkisstjórn tók við keflinu á dögunum. Vísir/Vilhelm Jóni Gunnarssyni innanríkisráðherra þykir umræða í tengslum við undirskriftasöfnun þar sem skorað er á forsætisráðherra að víkja Jóni úr embætti vera ómálaefnanleg og ekki svaraverð. Hann segist ætla að láta verkin tala.
Greint var frá því dag að hópur sem berst gegn ofbeldismenningu hafi hafið undirskriftarsöfnun þar sem þess er krafist að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra víki Jóni Gunnarssyni úr starfi sem ráðherra. Nýstofnaður Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu stendur fyrir undirskriftarsöfnuninni og telur ekki von á nauðsynlegum úrbótum í kerfinu með Jón í brúnni. Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 1.700 manns skrifað undir listann. Jón var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem hann var inntur eftir viðbrögðum við undirskriftarsöfnunni. „Ég segi bara eitt um þessi mál almennt. Það er gríðarlega mikilvægt að við öll tökumst á við þennan vágest í íslensku samfélagi, sem kynferðisafbrotamál eru. Ég mun ekki draga af mér á þeim vettvangi,“ sagði Jón. Segist hann ætla að láta verkin tala og þolendur ofbeldis þurfi ekki að hafa áhyggjur að því að málefnum þeirra verði sópað undir teppið. „Mér finnst þessi umræða hafa verið ómálefnanlegt og mér finnst hún ekki svaraverð. Ég ætla ekki að elta ólar við hana. Við skulum bara láta verkin tala, það er það sem við ætlum að gera hér. Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að við séum að fara að sópa einhverjum slíkum málaflokkum undir teppið. Það er ekki í kortunum,“ sagði Jón. Fyrr í þættinum greindi hann frá því að hann hafi í morgun átt fund með ríkislögreglustjóra og starfsmönnum þar sem þessi mál voru rædd. Benti Jón á að aðeins væri talið að um tuttugu prósent af kynferðisbrotum væru tilkynnt til lögreglunnar. „Það þarf auðvitað að auka traust þeirra sem standa frammi fyrir slíkum málum, brotaþolum og annarra, einfalda kannski leiðir þeirra til að tilkynna þetta inn,“ sagði Jón sem reiknar með að tilkynningum um brot muni fara fjölgandi. „Með auknu viðbragði og auknu trausti á því kerfi sem tekur við þessum málum gerum við ráð fyrir að það muni fjölga mjög brotum sem verða tilkynnt inn til lögreglunnar. Þá þarf auðvitað að fylgja því eftir með fjármagni svo hún geti brugðist og málsmeðferðartíminn verði ekki alltof langur. Það hefur verið gagnrýnt og það er réttmæt gagnrýni.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Kynferðisofbeldi MeToo Lögreglumál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Skora á Katrínu að víkja Jóni úr ráðuneytinu Rúmlega 1500 hafa skrifað undir áskorun til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að víkja Jóni Gunnarssyni úr embætti innanríkisráðherra. Nýstofnaður Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu stendur fyrir undirskriftarsöfnuninni og telja ekki von á nauðsynlegum úrbótum í kerfinu með hann í brúnni. 6. desember 2021 11:53 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Sofa rótt í Grindavík og halda í vonina Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Skora á Katrínu að víkja Jóni úr ráðuneytinu Rúmlega 1500 hafa skrifað undir áskorun til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að víkja Jóni Gunnarssyni úr embætti innanríkisráðherra. Nýstofnaður Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu stendur fyrir undirskriftarsöfnuninni og telja ekki von á nauðsynlegum úrbótum í kerfinu með hann í brúnni. 6. desember 2021 11:53