HK keyrði yfir FH í síðari hálfleik Anton Ingi Leifsson skrifar 16. janúar 2021 14:50 Kristín Guðmundsdóttir og stöllur voru frábærar í síðari hálfleik. vísir/bára Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik keyrði HK yfir FH er liðin mættust í fjórðu umferð Olís deildar kvenna í dag. FH skoraði sex mörk í síðari hálfleik og lokatölur 33-21.
HK var sterkari aðilinn framan af fyrri hálfleik en FH kom sterkt til baka og náði að komast aftur áður en fyrri hálfleik lauk. FH leiddi í hálfleik 15-14. HK byrjaði síðari hálfleikinn á 12-1 kafla. Ótrúlegur viðsnúningur og komust þær níu mörkum yfir, 25-16, áður en FH náði að skora annað mark sitt í síðari hálfleik. Þá var um stundarfjórðungur eftir og HK með mikla yfirburði svo spennan var ekki mikil undir lok leiksins. Lokatölur 33-21. Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði sjö mörk og var markahæst hjá HK. Sigríður Hauksdóttir og Kristín Guðmundsdóttir skoruðu sex mörk hvor. Emilía Ósk Steinarsdóttir var í sérflokki í liði FH og skoraði hún tíu mörk. Ragnheiður Tómasdóttir kom næst með fjögur mörk. FH er enn án stiga á botni deildarinnar en en HK er með fjögur stig eftir umferðirnar fjórar. FH leikur næst gegn Val á þriðjudag en HK fer norður og mætir KA/Þór. Á sama tíma vann Valur sigur á Stjörnunni en klukkan 16.00 er það leikur Hauka og KA/Þór. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild kvenna HK FH Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Handbolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Fótbolti Fleiri fréttir Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Sjá meira