Orsakir banaslyssins við Viðborðssel þríþættar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 19. nóvember 2020 11:08 Slysið varð á þjóðvegi 1 við Viðborðssel. Vísir
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að ökumaður bíls sem ekið var á gangandi vegfarenda á Suðurlandsvegi við Viðborðssel með þeim afleiðingum að hann lést hafi ekið of hratt miðað við aðstæður. Þá telur nefndin að vegfarandinn hafi ekki gætt að sér er hann gekk dökkklæddur eftir akrein þjóðvegar í myrkri og rigningu í akstursstefnu bifreiðar. Slysið varð þeim hætti að síðdegis þann 21. nóvember 2019 gekk dökkklæddur maður í austur á hægri akrein Suðurlandssvegar við Viðborðssel. Maðurinn gekk með bakið í aksturstefnu, með vasaljós, en án endurskinsmerkja. Myrkur var og rigning en á sama tíma ók ökumaður pallbíls austur Suðurlandsveg. Rétt áður en slysið varð var bifreið ekið úr gagnstæðri átt framhjá manninum. Ökumaður og farþegi þeirrar bifreiðar sögðu manninn hafa gengið eftir miðri akrein vegarins þegar þeir óku framhjá manninum. Skömmu síðar var pallbílnum ekið á manninn. Ökumaðurinn sá aldrei vegfarandann Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að ökumaður pallbílsins hafi ekki séð manninn á veginum fyrir slysið. Hægra framhorn bílsins takst á manninn sem kastaðist í götuna. Ökumaðurinn fann högg koma á bílinn og farþegi í bílnum sá að ekið hafði verið á mann. Vegfarandinn hlaut banvæna fjöláverka og lést á vettvangi. Aðstæðum á vettvangi var lýst þannig að dimmt hafi verið, vegurinn blautur og skyggni lítið. Hraði bílsins samkvæmt aksturstölvu hans var 89 kílómetrar á klukkustund. Nefnir rannsóknarnefndin að orsakir slyssins séu þríþættar. Ökumaðurinn hafi ekki séð vegfarandann, vegfarandinn hafi ekki gætt að sér er hann gekk dökkklæddur eftir akrein þjóðvegar í rigningu og myrkri í akstursstefnu bifreiða og að ökumaðurinn hafi ekið of hratt miðað við aðstæður. Brýnt að draga úr hraða í dimmu veðri Í skýrslunni er bent á að nauðsynlegt sé að allir vegfarendur geri sér grein fyrir áhrifum myrkurs og bleytu á sýn ökumanna, rigning og myrkur skerði útsýn ökumanna. Bleyta á rúðum takmarki útsýni og regndropar dreifi og endurkasti ljósi. Er því brýnt fyrir ökumönnum að nauðsynlegt sé að draga úr aksturshraða í dimmu veðri og enn frekar þegar vegur er einnig blautur, til þess að tryggja nægilega sjónvegalengd þannig að ökumaður hafi möguleika á að bregðast við og stöðva ökutæki ef hætta skapast. Þá er einnig brýnt fyrir gangandi vegfarendum að nota endurskinsmerki við göngu í myrkri þar sem þau auki sýnileika fyrir ökumönnum um marga tugi metra og gefi ökumönnum meiri möguleika á því að bregðast við tímanlega. Þá er vegfarandum einnig bent á það að ganga á móti umferðinni í vegkantinum, með því móti sé auðveldara að greina aðkomandi farartæki og lýsa á móti til að vekja á sér athygli.
Hornafjörður Samgönguslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira