Innlent

Sterkur grunur um riðuveiki í Akrahreppi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið er á borði Matvælastofnunar. Myndin er úr safni.
Málið er á borði Matvælastofnunar. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Sterkur grunur er um riðuveiki á Stóru-Ökrum 1, Brekkukoti, í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun hefur sett bann á allan flutning líffjár, þ.e. sauð- og geitfjár innan Tröllaskagahólfs til bráðabirgða þar til greining hefur verið staðfest. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Þar segir að bóndinn á bænum hafi haft samband við starfandi dýralækni sem tilkynnti héraðsdýralækni um kind með einkenni riðuveiki. Héraðsdýralæknir skoðaði kindina sem síðan var aflífuð, sýni tekin og send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum.

Bráðabirgðaniðurstöður liggi fyrir sem benda sterklega til að um riðuveiki sé að ræða en staðfesting mun liggja fyrir eftir helgi.

Búið er í Tröllaskagahólfi og á svæði þar sem ekki hefur greinst riða síðan árið 2000. Á búinu er nú um 500 fullorðið fé auk um 300 lamba.

Á meðan beðið er eftir staðfestingu vinnur héraðsdýralæknir að undirbúningi aðgerða og öflun faraldsfræðilegra upplýsinga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×