Íbúðafélagið Bjarg hyggst lækka leigu stórs hóps leigjenda sinna frá og með 1. september næstkomandi. Lækkunin nemur allt að 35.000 kr. á mánuði og því er um verulega búbót að ræða fyrir þá sem leigja íbúð af Bjargi.
Ástæða lækkunarinnar er hagstæð ný langtímafjármögnun á lánum félagsins hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) í kjölfar þess að niðurstaða náðist í ríkisstjórn um framtíðarfyrirkomulag lánveitinga stofnunarinnar á samfélagslegum forsendum til byggingar og kaupa á íbúðum.
Skrifað verður undir viljayfirlýsingu um fjármögnunina í dag. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs leigufélags, og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS undirrita viljayfirlýsinguna.
Leiguíbúðir Bjargs íbúðafélags eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga á vinnumarkaði sem eru undir ákveðnum tekju- og eignarmörkum. Bjarg er með hátt í 500 íbúðir í útleigu og með 600 íbúðir til viðbótar í byggingu eða undirbúningi.