Fjögur bítast um tvö embætti innan VG

Frá vinstri Jana Salóme, Sigríður Gísladóttir, Steinar Harðarson og Líf …
Frá vinstri Jana Salóme, Sigríður Gísladóttir, Steinar Harðarson og Líf Magneudóttir. Samsett mynd

Fjórir eru í framboði til tveggja embætta stjórnar Vinstri grænna(VG). Kjörið verður í embættin á landsfundi flokksins sem fer fram um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinstri grænum.

Í embætti ritara stefna þær Jana Salóme Ingibjargar- og Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, og Sigríður Gísladóttir, dýralæknir á Ísafirði og formaður VG á Vestfjörðum.

Í framboði til gjaldkera eru þau Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Steinar Harðarson vinnuverndarráðgjafi og athafnastjóri.

Katrín og Guðmundur ekki fengið mótframboð

Í tilkynningunni kemur fram að á annan tug félaga Vinstri grænna hafi boðið sig fram til stjórnarsetu, en kosið er um samtals ellefu sæti í stjórn og fjögur til vara.

Þá hefur ekki borist framboð til formanns og varaformanns, en í þeim embættum sitja sem kunnugt er Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Framboðsfrestur rennur út annað kvöld.

Á landsfundi verða sömuleiðis kosnir fjörtíu fulltrúar í flokksráð og tíu til vara. Framboðsfrestur í flokksráð rennur út á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka