Tvítugur Íslendingur ákærður fyrir hrottalegt morð í Kaliforníu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. júlí 2021 10:25 Daníel fannst á vettvangi morðsins og var handtekinn samstundis. Myndin er alls ótengd fréttinni. Getty/Jane Tyska Íslenskur karlmaður um tvítugt er grunaður um að hafa myrt og limlest unga konu í bænum Ridgecrest í Kaliforníu í maímánuði. Hann hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og er sagður hafa játað morðið.
Að morgni dags 18. maí fannst Daníel Gunnarsson í bílskúr á heimili stjúpföður síns í Ridgecrest með lík Katie Pham, 21 árs stúlku, við hlið sér. Samkvæmt dómsgögnum sem fréttastofa 17 News hefur undir höndum voru buxur, hendur og háls Daníels útataðar í blóði. Að mati réttarmeinafræðings var Pham stungin til bana en hún var með fjölda stunguáverka á líkama og höfði. Talið er að Daníel hafi notað ísnál við verknaðinn. Daníel var handtekinn á staðnum og játaði fyrir lögreglumönnum að hafa orðið Pham að bana. Þá hafi hann sagt við lögreglumenn þegar þeir spurðu hann út í áverka á höfði Pham: „Ég veit það ekki, ég hlýt að hafa barið hana í höfuðið.“ Samkvæmt frétt DV um málið fluttist Daníel til Kaliforníu með móður sinni, sem var af tékkneskum uppruna, fyrir nokkrum árum. Hann hafi verið búsettur þar í nokkur ár og gengið í gagnfræðiskóla í bænum en faðir Daníels er íslenskur. Hættu saman stuttu fyrir morðið Haft er eftir stjúpföður Daníels í frétt 17 News að Daníel og Pham, sem var skólasystir hans í gagnfræðiskóla, hafi átt í sambandi í stuttan tíma fyrir morðið. Snemma morguns 18. maí hafi Daníel hins vegar tjáð honum að hann væri að ganga í gegn um sambandsslit. Þá hafi systir stjúpföðurins séð Daníel og Pham saman rétt áður en Pham var myrt. Í skýrslutöku hjá lögreglu greindu tveir vinir Daníels frá því að Daníel og Pham hafi verið að hittast en sambandið hafi þó ekki verið alvarlegt. Daníel hafi þó verið í uppnámi vegna þess að Pham bar ekki sömu tilfinningar til hans og hann bar til hennar. Þá hafi Daníel liðið mjög illa andlega og hafi daginn fyrir morðið gert tilraun til að taka eigið líf með því að keyra á vegg. Þá er haft eftir vinkonu Pham að hún hafi orðið vitni að rifrildi milli Pham og Daníels nokkrum dögum fyrir morðið, þar sem Daníel hafi verið nokkuð orðljótur. Þau hafi keyrt til Las Vegas til að sækja vinkonuna og á leiðinni heim hafi Daníel keyrt eins og óður maður vegna þess að Pham var í símanum og sýndi honum ekki athygli. Að lokum hafi vinkonunni tekist að fá Daníel að stoppa bílinn og keyrði hún sjálf það sem eftir var heimferðarinnar. Gengst undir geðrænt mat fyrir réttarhöldin Grunur er um að Daníel hafi neytt fíkniefna fyrir morðið en hann sagðist sjálfur í skýrslutöku hjá lögreglu vera í vímu eftir að hafa neytt maríjúana. Stjúpfaðir Daníels sagðist aðspurður ekki vita til þess að Daníel hafi nokkurn tíma neytt fíkniefna eða glímt við geðræn vandamál. Leiða átti Daníel fyrir dómara í síðustu viku en því var frestað og ákveðið að Daníel skyldi gangast undir geðrænt mat. Vitnaleiðsla í málinu mun fara fram í byrjun ágúst en Daníel situr nú í gæsluvarðhaldi og á hann ekki möguleika á að vera sleppt gegn tryggingu.
Bandaríkin Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Fleiri fréttir Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi Sjá meira