Opnuðu barinn Jaja Ding Dong á Húsavík í dag Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. júlí 2020 20:22 Örlygur Hnefill Örlygsson og Leonardo Piccione, báðir miklir Eurovision aðdáendur og veitingamenn á Jaja Ding Dong Húsavík Aðsend
Barinn Jaja Ding Dong Húsavík var formlega opnaður í dag. Barinn, sem reistur var við Cape hotel í bænum, er nefndur eftir samnefndu – og vinsælu – lagi úr Eurovision-kvikmynd Wills Ferrells. Myndin, Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, var frumsýnd á streymisveitunni Netflix í júní. Hún er að stórum hluta tekin upp á Húsavík og það var einmitt þar sem lagið JaJa Ding Dong var flutt, við gríðarlegan fögnuð „Húsvíkinganna“ sem á hlýddu. Og sumar persónur myndarinnar voru hrifnari af laginu en aðrar, líkt og atriðið hér fyrir neðan sýnir. „Það var þannig að þessi mynd kom í fangið á okkur Húsvíkingum, við vorum auðvitað viðloðandi þessar tökur í fyrra en vissum ekki hvernig myndin yrði. Svo fóru þeir svo fallega með bæinn okkar og við höfðum svo gaman að þessu að okkur langaði að gera eitthvað svona skemmtilegt í sumar. Og Íslendingarnir eru svo mikið að koma til okkar í sumar og úr varð að við réðumst í að smíða útibar hérna við hótelið, sem heitir Jaja Ding Dong Húsavík,“ segir Örlygur Hnefill Örlygsson, hótelstjóri Cape hotel á Húsavík og eigandi hins nýja öldurhúss. Hann segir aðspurður að ekki hafi verið um annað nafn á barinn að ræða en Jaja Ding Dong. Aðra vísun í Eurovision-mynd Wills Ferrells má þó finna á barnum en þar er fáanlegur kokteill að nafni Double Trouble, líkt og lagið sem karakterar þeirra Ferrells og Rachel McAdams flytja í undankeppni Eurovision. Barinn opnaði í dag en hefur verið í smíðum síðan strax eftir að myndin kom út. „Við erum búin að vera hérna myrkanna á milli að smíða,“ segir Örlygur léttur í bragði. Líkt og áður segir er barinn utandyra og starfsemi hans því nokkuð háð veðri. Fyrsti dagurinn gekk vel í því samhengi, að sögn Örlygs. „Hann var mjög fínn í fjóra tíma, sól og blíða, en svo kom hellidemba. Það er samt allt í lagi, þegar það gerist bjóðum við öllum í bókastofuna hér á Cape hotel. Og sem betur fer er búið að vera mikil sól og blíða hjá okkur í sumar.“ Ég var fyrsti viðskiptavinur Jaja Ding Dong á Húsavík áðan 🤠 No big deal pic.twitter.com/MNMNWMIqd9— Hlynur Sigurdsson (@hlynurblaer) July 11, 2020 Örlygur segir að annars sé talsvert að gera hjá þeim á hótelinu nú í sumar. Innanlandsferðamennskan hafi tekið mikinn kipp síðustu vikur og fyrir um hálfum mánuði síðan hófu öll herbergi að fyllast á nær hverjum degi. „Við bjuggumst ekki við neinu en erum að fá rosalega skemmtilegt sumar. Íslendingar ferðast öðruvísi en erlendu ferðamennirnir. Þeir eru meira að fara í bæina og slappa af, þeir fara minna í fossa og á öll fjöll, þeir eru að skoða mannlífið meira. Þannig að það er önnur stemning. Ég er búinn að vera í þessu í fjórtán ár og þetta er skemmtilegasta „season“ sem ég hef verið í, það er rosalega skemmtilegur fílingur og fólk er létt á því,“ segir Örlygur.
Eurovision Eurovision-mynd Will Ferrell Norðurþing Tengdar fréttir Katrín syngur lagið Húsavík með réttum íslenskum framburði Söngkonan Katrín Ýr birtir fallegt myndband á YouTube-síðu sinni þar sem hún flytur lagið Húsavík úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga. 7. júlí 2020 07:00 Söngatriði Eurovision-stjarnanna í kvikmynd Will Ferrell Kvikmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga kom út á Netflix á dögunum og er hún núna vinsælasta afþreyingarefnið á meðal Íslendinga á veitunni. 6. júlí 2020 10:29 Húsavík er Eurovisionbærinn með greini og stóru e-i Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri segir Húsvíkinga ætla að nota þann byr sem mynd Will Ferrels hefur skapað. 2. júlí 2020 07:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira
Katrín syngur lagið Húsavík með réttum íslenskum framburði Söngkonan Katrín Ýr birtir fallegt myndband á YouTube-síðu sinni þar sem hún flytur lagið Húsavík úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga. 7. júlí 2020 07:00
Söngatriði Eurovision-stjarnanna í kvikmynd Will Ferrell Kvikmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga kom út á Netflix á dögunum og er hún núna vinsælasta afþreyingarefnið á meðal Íslendinga á veitunni. 6. júlí 2020 10:29
Húsavík er Eurovisionbærinn með greini og stóru e-i Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri segir Húsvíkinga ætla að nota þann byr sem mynd Will Ferrels hefur skapað. 2. júlí 2020 07:00