Engin kósýteppi í boði í Hússtjórnarskólanum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 18. maí 2022 23:00 Hér í Hússtjórnarskólanum verður nóg um værðarvoðir næstu misseri. vísir/sigurjón Skólameistari Hússtjórnarskólans til 24 ára útskrifaði í dag nemendur sína í síðasta skipti. Við kíktum í skólann með reynsluboltanum og eftirmanni hennar, sem lofar að halda í hefðir lærimóður sinnar.
Í áttatíu ár hefur Hússtjórnarskólinn, sem áður hét Húsmæðraskólinn, verið starfræktur á Sólvallagötu í gamla Vesturbænum. Síðustu 24 ár hefur honum verið stýrt traustum höndum Margrétar Dórótheu Sigfúsdóttur sem lýkur nú starfi sínu 75 ára að aldri. Í Kvöldfréttum Stöðvar 2 kíktum við í Hússtjórnarskólann og spjölluðum við bæði fráfarandi og verðandi skólameistarana: Margréti finnst nokkuð skrýtið að láta af störfum eftir öll þessi ár: „Þetta er svakalega skrýtið. Ógurlega skrýtið. Ég hugsaði í morgun hérna við að slíta skólanum 48 sinnum. Mér finnst það mjög skrýtið,“ segir Margrét. En arftakinn er vel að starfinu kominn. Það er hún Marta María Arnarsdóttir, sem er landsmönnum vel kunn eftir að hafa stýrt Covid-sýnatökunum við Suðurlandsbraut í heimsfaraldrinum. Þær stöllur Marta og Margrét við hinn svokallaða prinsessustiga í skólabyggingunni.vísir/ívar „Það er búið að vera ansi skemmtilegt á Suðurlandsbrautinni. Mikið at og mikið um að vera. Ég á alveg klárlega eftir að sakna þess en ég tek fagnandi á móti þessu nýja starfi. Það verður mjög spennandi,“ segir Marta María. En ætlar nýi skólameistarinn sér að breyta til eða halda í hefðir Margrétar? „Ég er búin að fylgjast vel með Margréti; hvernig hún lagar kaffið og sýður grautinn og svona. Það verður að vera eins,“ segir Marta María. Og Margrét grípur inn í: „Það náttúrulega koma alltaf breytingar á einhverju ungu fólki og nýju fólki. En ég er viss um að hún fari ekkert í einhverjar róttækar og stórkostlega svakalegar breytingar að snúa öllu við fyrsta árið.“ Þú yrðir ekki sátt með það? „Mér kemur þetta ekkert við. Auðvitað hugsa ég mér... æ ég get ekki ímyndað mér það,“ segir Margrét. Engar enskuslettur hér Skólinn tekur 24 nemendur hverja önn og í húsinu er heimavist fyrir 15 þeirra. En hvað er það sem kennt er í Hússtjórnarskólanum? Það telur Margrét upp í einni runu: „Í fyrsta lagi matreiðsla, ræsting, næringarfræði, vörufræði, prjón, hekl, vefnaður, fatasaumur, útsaumur. Þá er það upptalið.“ Í skólanum er svo einstök vefstofu þar sem unnar eru alls kyns vefnaðarvörur en alls ekki nein kósýteppi eins og Margrét hamrar á. „Þetta eru værðarvoðir,“ segir hún ákveðin. „Hér eru sko engin kósýteppi.“ Já, í Hússtjórnarskólanum hefur Margrét haldið í góða íslensku og vonar að arftaki sinn geri það líka. Því má búast við að fleiri værðarvoðir verði ofnar þar á næstu árum.
Skóla - og menntamál Hús og heimili Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira