Hátt í fjórir milljarðar munu búa við vatnsskort eftir tvö ár Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. mars 2023 11:37 Alþjóðlegi vatnsdagurinn er í dag. Hér eru krakkar í Rio de Janeiro í Brasilíu að baða sig í ánni í tilefni dagsins. Getty/Fabio Teixeira 3,5 milljarðar manna munu búa við vatnsskort árið 2025 vegna mengunar ef mannkynið breytir ekki framkomu sinni við vatn. Sérfræðingur segir að Íslendingar, eins og aðrir, þurfi að vernda vatnið sitt betur.
Alþjóðadagur vatnsins er í dag, enda tilefni til að halda upp á þetta lífsnauðsynlega efni. Þrátt fyrir mikilvægi vatns hefur slæm umgengni um það valdið því að allt að 3,5 miljarðar manna muni búa við vatnsskort árið 2025, að stórum hluta vegna mengunar sem gert hefur það ódrykkjarhæft. Í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum er varað við vampírískri ofnotkun á vatni í heiminum og heimsbúar þurfi að fara að huga verulega að vatnsnotkun. „Það þarf ekkert rosalega mikið að gerast til þess að vatn mengist,“ segir Eydís Salome Eiríksdóttir, jarðefnafræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun. Greint var frá því á mánudag að mannkynið þurfi að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Vegna hnattrænnar hlýnunar eru þurrkar farnir að vera algengari í öllum heimsálfum og meira að segja hér á Íslandi, þar sem almennt hefur verið ofgnótt af vatni. „Það hefur kannski ekki verið mikil vitund meðal Íslendinga um að okkur beri að vernda vatnið okkar, kannski af því við höfum haft svo mikið af því,“ segir Eydís. Þar spili verndun jökla stórt hlutverk. „Í rauninni kannski þurfum við ekki að hafa áhyggjur af íslensku jöklunum á næstu árum en það er alveg fyrirséð og um leið og einn jökull hörfar breytast gríðarlega stór afrennslissvæði,“ segir Eydís. „Þetta getur breytt gríðarlega miklu og haft mjög mikil áhrif á grunnvatnsstöðu á Íslandi.“ Hún hvetur fólk að fara út í náttúruna, finna sér lækjarsprænu eða fara út í fjöru og hlusta á vatnið. „Hlusta á vatnið og pæla svolítið í því og hvað við þurfum að gera til að passa upp á það. Hvort við getum gert bara með því að hreinsa til í kringum okkur, passa að það fari ekki rusl út í vatnið okkar og passa að við séum ekki að henda rusli í ána sem er okkur kær. Og bara njóta þess að vera í náttúrunni.“
Umhverfismál Loftslagsmál Tengdar fréttir Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. 20. mars 2023 14:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira
Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. 20. mars 2023 14:24