U-21 árs landsliðsmaðurinn greindist á dönsku landamærunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. október 2020 11:21 Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ. vísir/egill
Leikmaður í U-21 árs landsliði Íslands greindist með kórónuveiruna við komuna til Danmerkur frá Lúxemborg þar sem liðið lék í undankeppni EM á þriðjudaginn. Ísland vann leikinn, 0-2. Norska liðið Strømsgodset greindi frá því í morgun að þeir Ari Leifsson og Valdimar Þór Ingimundarson, sem voru báðir í byrjunarliðinu gegn Lúxemborg, þyrftu að fara í tíu daga sóttkví eftir að hafa í samskiptum við leikmanninn sem greindist með veiruna. Að sögn Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, er ekki vitað til þess að annar leikmaður U-21 árs landsliðsins sé smitaður. „Þessi leikmaður greindist á dönsku landamærunum. Það eru misjafnar reglur um sóttkví milli landa. Einhverjir eru búnir að fara í skimun og eru að fara að spila um helgina. Eftir því sem við best vitum er þetta einstakt smit,“ sagði Klara við Vísi. „Þetta er með ólíkindum. Ég held að þeir hafi verið prófaðir fjórum sinnum á einni viku meðan þeir voru með landsliðinu en þessi veira er úti um allt.“ Aðeins leikmenn sem leika með erlendum félagsliðum tóku þátt í leiknum í Lúxemborg á þriðjudaginn eins og búið var að ákveða. Að sögn Klöru er starfslið U-21 árs landsliðsins í heimkomusóttkví. Samkvæmt heimildum Vísis þarf einn starfsmaður að fara í venjulega sóttkví þar sem hann var í meiri samskiptum en aðrir við leikmanninn sem smitaðist. Það er þó ekki Arnar Þór Viðarsson, þjálfari U-21 árs landsliðsins, sem fór strax eftir leikinn í Lúxemborg til Íslands þar sem hann stýrði A-landsliðinu gegn Belgíu daginn eftir. Arnar fór í skimun við komuna til Íslands og kom ekki til móts við íslenska hópinn fyrr en hann hafði fengið neikvæða niðurstöðu úr smitprófi. Starfslið A-landsliðsins þurfti að fara í sóttkví eftir að Þorgrímur Þráinsson greindist með kórónuveiruna og því þurfti að finna nýtt starfslið í flýti fyrir leikinn gegn Belgum. Arnar og Davíð Snorri Jónasson stýrðu íslenska liðinu af hliðarlínunni en þeir Erik Hamrén og Freyr Alexandersson, þjálfarar A-landsliðsins, voru í glerbúri á Laugardalsvelli. Á upplýsingafundi almannavarna í gær viðurkenndi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn að það hefðu verið mistök að veita þeim undanþágu til að geta verið á leiknum. Íslenska U-21 árs landsliðið átti að mæta Ítalíu hér á landi í undankeppni EM síðasta föstudag en leiknum var frestað vegna smita í ítalska hópnum. Ekki er komin ný dagsetning á leikinn.
KSÍ Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Dagskráin í dag: Brjálað að gera í Bestu deildinni Sport Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Sjá meira