Árásarmaðurinn í Monterey fannst látinn í sendiferðabíl Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2023 06:34 Meintur árásarmaður hét Huu Can Tran og var 72 ára. AP Lögregla í Kaliforníu hefur staðfest að maðurinn, sem grunaður er um að hafa skotið tíu manns til bana í dansstúdíói í Monterey á laugardagskvöld, hafi fundist látinn í sendiferðabíl.
Maðurinn sem um ræðir hét Huu Can Tran og var 72 ára. Hann virðist hafa notast við skotvopn til að svipta sig lífi, að því er fram kom í máli Robert Luna, lögreglustjórans í Los Angeles, í gær. Árásin var gerð á sama tíma og verið var að halda upp á áramót samkvæmt kínverska dagatalinu í Monterey Park. Stórt hlutfall íbúa á svæðinu eru af kínverskum uppruna. Lögregla vinnur nú að því að reyna að komast að tilefni árásarinnar. Auk þeirra tíu sem létust í árásinni særðust tíu til viðbótar og eru sjö þeirra enn á sjúkrahúsi. Ástand sumra er enn sagt alvarlegt. Luna segir að enn sé verið að bera kennsl á einhverja þeirra sem létust en að svo virðist sem að þau hafi verið á sextugs- og sjötugsaldri og mögulega einhverjir enn eldri. Lögregla hafði áður greint frá því að í hópi látinna hafi verið fimm karlar og fimm konur og að þau hafi öll verið af asískum uppruna. Árásarmaðurinn fannst í sendiferðabíl í Torrence, um fimmtíu kílómetrum frá árásarstaðnum í Monterey Park.EPA Í frétt BBC segir að fjöldamorðið, sem sé eitt það mannskæðasta í sögu Kaliforníu, hafi hafist klukkan 22:22 að staðartíma á laugardagskvöld í hinu vinsæla Star Ballroom dansstúdíói í Monterey Park, rúmum tíu kílómetrum austur af Los Angeles. Maðurinn hafi svo flúið af vettvangi og verið mættur í annað dansstúdíó í bænum Alhambra um hálftíma síðar. Þar hafi fólki tekist að ná hálfsjálfvirkum riffli úr höndum hans, en árásarmanninum tekist að flýja af vettvangi. Hófst þá umfangsmikil leit lögreglu að manninum og um tólf tímum síðar fannst maðurinn í sendiferðabíl á bílastæði í bænum Torrance, um fimmtíu kílómetrum frá árásarstaðnum í Monterey Park. Umsátursástand hafi myndast en lögregla svo heyrt skothljóð út bílnum þegar lögreglumenn nálguðust bílinn.
Skotárásir í Bandaríkjunum Bandaríkin Tengdar fréttir Tveggja tíma umsátri lokið og birta mynd af meintum árásarmanni Lögreglan í Monterey hefur nú lokið umsátursaðgerðum vegna leitar að manninum sem skaut tíu manns til bana á skemmtistað í bænum í nótt. Lögreglan vestanhafs hefur ekki viljað gefa út hvort meintur árásarmaður hafi verið í bílnum eða ekki. 22. janúar 2023 22:36 Skaut tíu til bana og gengur enn laus Maður skaut minnst tíu til bana og særði tíu til viðbótar í bæ skammt frá Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Umfangsmikil hátíð stóð yfir í bænum Monterey Park vegna nýs tunglárs og voru tugir þúsunda manna í bænum. 22. janúar 2023 13:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira
Tveggja tíma umsátri lokið og birta mynd af meintum árásarmanni Lögreglan í Monterey hefur nú lokið umsátursaðgerðum vegna leitar að manninum sem skaut tíu manns til bana á skemmtistað í bænum í nótt. Lögreglan vestanhafs hefur ekki viljað gefa út hvort meintur árásarmaður hafi verið í bílnum eða ekki. 22. janúar 2023 22:36
Skaut tíu til bana og gengur enn laus Maður skaut minnst tíu til bana og særði tíu til viðbótar í bæ skammt frá Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Umfangsmikil hátíð stóð yfir í bænum Monterey Park vegna nýs tunglárs og voru tugir þúsunda manna í bænum. 22. janúar 2023 13:04