Fótbolti

Hamrén: Fyrri hálf­leikurinn til skammar, vorum ekki til staðar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Erik Hamren þakkar Harry Kane fyrir leikinn.
Erik Hamren þakkar Harry Kane fyrir leikinn. Getty/Ian Walton

Erik Hamrén var langt frá því sáttur með fyrri hálfleik Íslands í 4-0 tapi gegn Englandi á Wembley í kvöld er liðin mættust í Þjóðadeildinni. Talaði hann um skammarlega frammistöðu og eina þá verstu í sinni tíð sem landsliðsþjálfari.

Þá vildi hann leyfa Hannesi Þór Halldórssyni að jafna met Birkis Kristinssonar sem leikjahæsti markvörður í sögu Íslands.

„Nei alls ekki. Það besta við daginn í dag er að U21 árs landsliðið er að öllum líkindum komið í lokakeppnina,“ sagði Hamrén aðspurður hvort hann gæti nokkuð verið ánægður með leik kvöldsins.

Varðandi vonbrigði kvöldsins

„Nei alls ekki. Það besta við daginn í dag er að U21 árs landsliðið er að öllum líkindum komið í lokakeppnina,“ sagði Hamrén aðspurður hvort hann gæti nokkuð verið ánægður með leik kvöldsins.

„Hef ekki oft verið vonsvikinn sem landsliðsþjálfari, fyrsti leikurinn gegn Sviss og svo í dag. Fyrri hálfleikurinn var til skammar, við vorum einfaldlega ekki til staðar. England eru góðir í fótbolta en við létum þá líta út fyrir að vera betri en þeir voru. Við vorum allavega aggressífir í seinni hálfleik en fyrri hálfleikurinn var skammarlegur.“

„Fyrir mér þá sýndum við ekki nægilega mikið dug og þor í dag. Enska liðið er gott og það verður að hrósa þeim. Þeir eru með góða leikmenn en við verðum að sýna dug og þor, við verðum að verja markið okkar. Fyrsta markið kemur eftir aukaspyrna og við erum ekki að dekka. Í seinna markinu þá stöndum við bara þarna og horfum á leikmenn enska liðsins, við erum ekki að sinna vinnunni okkar,“ sagði sá sænski um frammistöðu íslenska liðsins.

„Í fyrri hálfleik erum við á vellinum en við erum ekki þar sem lið, við erum ekki einu sinni þar sem einstaklingar. Við litum út fyrir að vera hræddir. Við reyndum allavega í seinni hálfleik, en það er erfitt og þá sérstaklega þegar við erum manni færri.“

Varðandi rauða spjaldið

„Rauða spjaldið er meðal margra hluta sem ég er ekki sáttur með í kvöld. Við áttum í vandræðum með þá 11 á móti 11 svo auðvitað áttum við í miklum vandræðum manni færri.“

„Ég hef ekki talað við leikmennina eftir leikinn. Ég bíð með það þangað til í kvöldmatnum í kvöld. Sagði í hálfleik það sem mér fannst um fyrri hálfleikinn við strákana. Ég tala við leikmenn og starfslið í kvöld,“ sagði þjálfari Íslands um lokaorð sín við íslenska hópinn.

„Í augnablikinu er ég aðallega reiður. Ég vildi sjá meira frá liðinu. Ég veit það er erfitt að spila við svona lið þegar þau spila vel. Þetta getur komið fyrir alla, meira að segja Þýskaland tapaði 6-0 fyrir Spáni og var með sömu tölfræði og við í kvöld. Fyrir mér er hugarfar svo mikilvægt í fótbolta og ég vildi sjá meira af því í kvöld.“

Varðandi markmannsskiptinguna í hálfleik

„Planið mitt var upprunalega að allir þrír markverðirnir myndu spila einn leik í þessari törn. Þeir hafa allir staðið sig vel síðan ég tók við þó Hannes Þór hafi spilað næstum alla leiki. Ögmundur átti að spila leikinn í kvöld en svo fékk ég þær upplýsingar um að Hannes þyrfti einn leik til að jafna met yfir flesta leiki markvarðar hjá íslenska A-landsliðinu svo ég vildi gefa honum það. Hann er þá að deila því meti og á það skilið fyrir allt sem hann hefur gert fyrir Ísland,“ sagði Hamrén í sínu síðasta viðtali sem landsliðsþjálfari Íslands.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×