Hvenær er óhætt að fara í sleik við ókunnuga? Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. apríl 2021 21:43 Sérfræðingar sem voru til viðtals sögðu að kossar og önnur náin snerting milli ókunnugra einstaklinga ætti að vera nokkuð örugg, að því gefnu að báðir aðilar hafi verið bólusettir. Getty New York Times birti á dögunum athyglisverða fréttaskýringu þar sem blaðamaður spyr sérfræðinga að því sem eflaust margir eru að velta fyrir sér nú þegar heimsfaraldur kórónuveiru hefur geysað í rúmt ár; „hvenær er óhætt að fara í sleik við ókunnuga?“
Umfjöllunin er sett í samhengi við framvindu mála hvað varðar bólusetningu bandarísku þjóðarinnar og vöngum velt yfir því hvenær lífið fer að færast aftur í eðlilegra horf með tilliti til tilhugalífsins. Sérfræðingar sem voru til viðtals sögðu að kossar og önnur náin snerting milli ókunnugra einstaklinga ætti að vera nokkuð örugg, að því gefnu að báðir aðilar hafi verið bólusettir. Jafnvel án staðfestingar um bólusetningu, felur það að fara í sleik við ókunnuga í sér minni áhættu en að sækja fjölmenna samkomu á skemmtistað eða partý að sögn David Rubin, prófessors í barnalækningum við læknadeild Háskólans í Pennsylvaníu. „Þetta er einn þessara gjörninga sem best er að láta viðkomandi einstakling taka ákvörðun um og ekki að dæma hana,“ segir Rubin. „Ef þú ert í öruggum aðstæðum og þú ert bara með þeirri manneskju, og þú vilt taka sénsinn á því að fara í sleik við viðkomandi og þú heldur að sú manneskja sé ekki í áhættuhóp hvað varðar Covid – samkvæmt ráðleggingum um sóttvarnir og forvarnir, þá getur þú látið vaða og farið í sleik við þá manneskju að vild,“ segir Peter Chin-Hong, sérfræðingur í smitsjúkdómum við Kaliforníuháskóla í San Fransisco. Hann bætir við að sé maður bólusettur, en geti ekki staðfest hvort hinn aðilinn sem viðkomandi vill kyssa sé bólusettur eða hvert heilsufarslegt ástand hans er, sé yfirleitt í lagi fyrir ungt fólk að kyssast. Unga fólkið duglegast að dreifa Covid-19 Rannsóknir hafa sýnt fram á að ungt fólk á aldrinum 20 til 29 ára er sá hópur sem virðist dreifa covid-19 smiti hvað víðast en um 20 prósent þeirra sem smituðust í Bandaríkjunum er fólk á þrítugsaldri samkvæmt rannsókn frá því í fyrrasumar. Skömmu síðar leiddi tölfræði í ljós að smit unga fólksins leiddu til víðtækari útbreiðslu sjúkdómsins meðal fólks á miðjum aldri. Eldra fólk er framar í röðinni til að fá bóluefni en um tveir þriðju Bandaríkjamanna yfir 65 ára aldri hafa þegar verið bólusettir sem þýðir að hlutfall þeirra sem eiga á hættu að veikjast alvarlega fer lækkandi. Þótt hættan af því að eldra fólk smitist af því yngra hafi dregist nokkuð saman þýðir það þó ekki að það sé algjörlega óhætt að djamma aftur eins og árið væri 2019. „Það er ekkert einfalt rautt ljós eða grænt ljós,“ segir William Schaffner, sérfræðingur í smitsjúkdómum við Vanderbilt háskóla.
Næturlíf Ástin og lífið Mest lesið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Tónlist Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Lífið samstarf Fleiri fréttir Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Sjá meira