Íslendingur í átta ára fangelsi fyrir nauðgun og gróft ofbeldi í Svíþjóð Kjartan Kjartansson skrifar 25. mars 2023 10:36 Nágranni gerði lögreglu viðvart þegar hann sá konuna og Geirmund nakin á svölum íbúðar hennar. Konan hrópaði á hjálp en hann dró hana inn aftur. Vísir/Getty Íslenskur ríkisborgari á fertugsaldri sem hefur þó verið búsettur í Svíþjóð allt sitt líf var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga ungri konu og beita hana grófu ofbeldi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn hefur ítrekað verið dæmdur fyrir kynferðisofbeldi í Svíþjóð.
Geirmundur Hrafn Jónsson, sem gengur undir nafninu André Falk í Svíþjóð, var sakfelldur fyrir að halda 25 ára gamalli konu fanginni í íbúð hennar í Skärholmen við Stokkhólm í fleiri klukkustundir, beita hana grófu ofbeldi og nauðga í ágúst. Vegfarandi kallaði til lögreglu þegar hann sá konuna nakta úti á svölum kalla á hjálp og Geirmund draga hana inn í íbúðina. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að Geirmundur hafi nokkrum sinnum verið dæmdur fyrir gróft kynferðisofbeldi áður. Þegar hann braut á konunni í fyrra var hann á reynslulausn vegna fangelsisdóms sem hann hlaut fyrir nauðgun, alvarlega líkamsárás og brot á friðhelgi einkalífs konu árið 2017. Sætti pyntingum í marga klukkutíma Konan sagði lögreglu að Geirmundur hefði læst hana inni í íbúð sinni, nauðgað sér hrottalega og beitt hana ofbeldi sem hafi líkst pyntingum klukkustundum saman. Hann hafi meðal annars helt sílepiparsósu í augu hennar þannig að hún sæi ekki. Hann hafi neytt hana til þess að skríða um, velta sér upp úr glerbrotum og brennt hana með vindlingum. Hann hafi hlegið á meðan á þessu stóð, að því er kemur fram í frétt sænska blaðsins Expressen. Réttarlæknir skráði um hundrað áverka á líkama konunnar þegar hún var skoðuð kvöldið eftir að lögregla skarst í leikinn. Læknirinn sagði að konan hefði verið pyntuð. Dómstóll í Södertörn sagði í dómsorði sínu að konan hafi orðið fyrir miklum andlegum og líkamlegum þjáningum og að hún hafi óttast um líf sitt. Geirmundur var einnig dæmdur til að afplána tvö og hálft ár af fyrri fangelsisdómi sem hann hlaut árið 2017. Ofbeldið átti sér stað í íbúð konunnar í Skärholmen, úthverfi Stokkhólms, í ágúst í fyrra.Vísir/Getty Röð dóma fyrir kynferðisofbeldi Í tilkynningu um dóminn á vef sænsku lögreglunnar kemur fram að Geirmundur hafi hlotið sakadóma fyrir sambærileg brot áður. Hann hlaut sjö ára fangelsisdóm fyrir tvær sérstaklega alvarlegar nauðganir og nauðgun á konu sem hann kynntist í gegnum stefnumótaforrit árið 2009. Nú síðast hlaut hann rúmlega fjögurra ára dóm fyrir nauðgun, alvarlega líkamsárás og alvarlegt brot gegn friðhelgi einkalífs konu árið 2017. Sænska blaðið Expressen segir að Geirmundur hafi aðeins afplánað tvö ár af dómnum frá 2017. Hann hafi verið á reynslulausn úr fangelsi þegar hann var handtekinn fyrir að ræna og misþyrma konunni í fyrra. Auk fangelsisdómanna sem Geirmundur hlaut á fullorðinsaldri var hann dæmdur fyrir að halda kærustu sinni nauðugri og beita hana ofbeldi þegar hann var sautján ára gamall árið 2004. Hann var dæmdur til að sæta meðferðarúrræði fyrir ungmenni. Geirmundur neitaði sök fyrir dómi. Verjandi hans segir líklegt að dómnum verði áfrýjað. Íhuguðu að vísa honum úr landi Geirmundur er íslenskur ríkisborgari, sonur íslenskra foreldra sem fæddist í Lundi árið 1986, að sögn Heimildarinnar. Hann hafi aldrei haft sænskan ríkisborgararétt þrátt fyrir að hafa búið í landinu alla sína ævi. Sænsk yfirvöld hafi kannað möguleikann að reka hann úr landi. Tengsl hans við Svíþjóð hafi þó verið talin það sterk að ekki væri grundvöllur til þess.
Svíþjóð Kynferðisofbeldi Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Fleiri fréttir Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Sjá meira