Arsenal sótti þrjú stig til New­cast­le

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pierre-Emerick Aubameyang átti fínan leik í dag.
Pierre-Emerick Aubameyang átti fínan leik í dag. EPA-EFE/Lee Smith

Arsenal vann 2-0 sigur á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Mohamed Elneny kom Arsenal yfir strax á 5. mínútu leiksins eftir sendingu Pierre-Emerick Aubameyang. Var það eina mark fyrri hálfleiks og staðan 1-0 er flautað var til hálfleiks.

Aubameyang sjálfur bætti við öðru marki Arsenal á 66. mínútu leiksins eftir sendingu Martinelli. Staðan orðin 2-0 og reyndust það lokatölur. Undir lok leiks fékk Fabian Schar beint rautt spjald í liði Newcastle og enduðu heimamenn því aðeins tíu inn á vellinum.

Arsenal er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 49 stig en Newcastle er í 17. sæti með 36 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira