Grínið sem varð að veruleika Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2021 10:01 Bjarki Már Elísson og félagar í Lemgo áttu frábæra leiki í Hamborg. getty/Axel Heimken Síðustu dagar hafa verið ansi góðir fyrir Bjarka Má Elísson og félaga í þýska handboltaliðinu Lemgo. Á fimmtudaginn unnu þeir ævintýralegan sigur á Kiel í undanúrslitum bikarkeppninnar og á föstudaginn varð Lemgo svo bikarmeistari í fyrsta sinn síðan 2002 eftir sigur á Melsungen. „
Þetta hafa verið ágætis dagar. Við spiluðum við Kiel í undanúrslitunum og það er einn rosalegasti leikur sem ég hef tekið þátt í á mínum ferli. Við vorum sjö mörkum undir í hálfleik gegn Evrópumeisturum Kiel en unnum seinni hálfleikinn með átta mörkum. Eftir það var mikill meðbyr með okkur og í úrslitaleiknum vorum við mjög góðir þannig að þetta voru frábærir dagar í Hamborg,“ sagði Bjarki í samtali við Vísi. Fimmtán mánuðir milli leikja Um var að ræða bikarhelgina 2020 en henni var frestað í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Bikarkeppnin fyrir tímabilið 2020-21 var aftur á móti felld niður. Lemgo vann B-deildarlið Friesenheim í átta liða úrslitunum, 23-26, í byrjun desember 2019. Undanúrslitaleikurinn gegn Kiel var svo heilum fimmtán mánuðum síðar. Í millitíðinni hafði Kiel orðið þýskur meistari og Evrópumeistari svo verkefni Bjarka og félaga var ærið. Leikmenn Lemgo fagna.getty/Axel Heimken „Við vorum kannski ekki sigurvissir en höfðum trú á að við gætum unnið þá. Grín og ekki grín en þegar það var dregið fórum við að tala um að við yrðum bikarmeistarar. Hvort sem það var sagt í gríni eða alvöru var hamrað á því nánast vikulega fram að úrslitahelginni sem var síðan frestað,“ sagði Bjarki. Ætluðum allavega að hafa gaman að þessu Landsliðsmaðurinn skoraði sex mörk í leiknum gegn Kiel og var markahæstur í liði Lemgo sem vann eins marks sigur, 29-28. Í hálfleik benti ekkert til þess enda var Kiel með sjö marka forskot, 18-11. „Við vorum eiginlega dauðir í hálfleik. Þá held ég að enginn hafi haft trú á þessu, hvorki við né þeir,“ sagði Bjarki. En hvernig var hálfreiksræðan hjá Florian Kehrmann, þjálfara Lemgo? „Við gerðum svolítið mörg mistök í fyrri hálfleik og ætluðum að fækka þeim. Svo töluðum við um að hafa allavega gaman að þessu. Við værum komnir til Hamborgar, loksins með áhorfendur og ætluðum að njóta þess. Svo kom þetta, mark fyrir mark, og það var ótrúlegt að klára þetta,“ sagði Bjarki. Unnu tvo Golíata Öllu minni spenna var í úrslitaleiknum þar sem Lemgo mætti Melsungen, liði landsliðsþjálfarans Guðmundar Guðmundssonar. Bjarki skoraði fjögur mörk í 28-24 sigri Lemgo. „Við vorum með vindinn í bakið eftir leikinn gegn Kiel og maður fann að stemmningin væri okkar megin. Varnarleikurinn var frábær og varamarkvörðurinn okkar kom snemma inn á og lokaði rammanum. Hann var óvænt hetja,“ sagði Bjarki. Leikmenn Lemgo fagna eftir sigurinn ótrúlega á Kiel.getty/Martin Rose Melsungen er ekkert lamb að leika sér við enda með mjög sterkan leikmannahóp og þar á bæ er markið sett hátt. „Á pappírnum eiga þeir að vera betri en við. Þeir eru með landsliðsmann í hverri einustu stöðu og sums staðar tvö. Þeir voru sigurstranglegri og eru með hörkulið. Miðað við hvernig þeir hafa keypt inn síðustu ár er stefnan sett á að berjast um meistaratitilinn,“ sagði Bjarki. Klefapartí og löng rútuferð Þetta var ekki bara fyrsti bikarmeistaratitill Lemgo síðan 2002 heldur fyrsti stóri titill félagsins síðan 2010 þegar það vann EHF-bikarinn. Og því var eðlilega fagnað vel og innilega. „Við héldum gott partí í klefanum og svo var rútuferð heim. Hún tekur venjulega tvo og hálfan til þrjá tíma en ætli hún hafi ekki verið svona fjórir til fjórir og hálfur með stoppum. Við fórum svo á bar þegar við komum til Lemgo og þar var fullt af fólki. Við fögnuðum þessu vel og líka á laugardaginn. Þá hittumst við á veitingastað og þar var sungið og trallað fram eftir degi,“ sagði Bjarki. Lemgo hefur fjórum sinnum orðið þýskur bikarmeistari (1995, 1997, 2002 og 2020).getty/Martin Rose Lemgo-menn fengu þó ekki langa hvíld því á sunnudaginn áttu þeir leik gegn Nordhorn. „Maður var kominn í bedda um miðnætti á laugardaginn og vaknaði svo og undirbjó sig fyrir deildarleik,“ sagði Bjarki. Hann og aðrir lykilmenn Lemgo komu lítið við sögu í leiknum en þrátt fyrir það vann liðið öruggan sigur, 25-32. Lemgo er í 10. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Nálægt gjaldþroti og falli Bjarki segir að bikarmeistaratitilinn hafi mikla þýðingu fyrir félagið og handboltabæinn Lemgo. „Það eru ekki nema þrjú ár síðan félagið bjargaði sér frá falli í lokaumferðinni. Þeir lentu í fjárhagsvandræðum fyrir nokkrum árum og þurftu að fara í enduruppbyggingu. Þeir hafa náð að snúa þessu við og eru núna orðnir stöðugir,“ sagði Bjarki. „Við erum um miðja deild, ekki í neinni fallbaráttu og frekar nær því að komast í efri hlutann en í hina áttina. Vonandi er þetta hvatning fyrir félagið til að gera enn betur. Við erum með frábært byrjunarlið en það vantar kannski aðeins upp á breiddina.“
Þýski handboltinn Mest lesið Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti Umfjöllun: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Fleiri fréttir Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi „Breytir eiginlega öllu fyrir mig“ Sjá meira
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti
Umfjöllun: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti
Umfjöllun: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti