Æði-strákarnir veittu Guðmundi Inga innblástur sem stefnir á þriðja sætið Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2022 11:35 Guðmundur Ingi Þóroddsson vill þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í kosningunum í vor. Vísir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga, hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hann segir að strákarnir í Æði hafi veitt honum innblástur til að bjóða sig fram.
Í tilkynningu frá Guðmundur Ingi kemur fram að fyrir um ári hafi hann boðið sig fram í forvali Samfylkingarinnar til Alþingiskosninga, fengið þar mjög góða kosningu en að „utanaðkomandi öfl“ hafi komið í veg fyrir að hann tæki sæti á lista. Hann hafi svo íhugað næstu skref sín í stjórnmálunum. „Ég hef verið óviss og óttast að það sama myndi gerast ef ég ákveði að bjóða fram krafta mína á sveitarstjórnarstiginu, það er að segja að mér myndi ganga vel í prófkjörinu eingöngu til þess að vera kippt út á síðustu stundu. Það er mikill undirbúningur að baki slíku verkefni og ótrúlega margar klukkustundir af sjálfboðavinnu fjölda fólks. Ég vil ekki leggja slíkt á félaga mína og því hef ég legið lengi undir feldi. Það var á Nýársdag sem ég sá fyrst þættina ÆÐI í sjónvarpinu þar sem þrír ungir strákar, Bassi, Binni og Patrekur eru í aðalhlutverkum. Mér fannst mikið til koma og ég hreifst af hispursleysi þeirra og framtakssemi. Þeir segja það sem þeir hugsa og gera það sem það þeir vilja. Eitthvað ræddu þeir strákarnir um stjórnmál og sagðist Binni vera vinstri maður en Patrekur beygist til hægri, eða þar til hann áttaði sig á því fyrir hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur í raun og veru. Eftir að hafa „kynnst“ þessum eðaldrengjum, með hámhorfi, þá hugsaði ég með mér hversu dásamlegt það hefði nú verið ef ég hefði haft þeirra gildi, þeirra þor og dugnað á sama aldri. Eftir síðasta þáttinn ákvað ég að liggja ekki lengur undir feldi, taka strákana í ÆÐI mér til fyrirmyndar og kýla á ákvörðun. Að þessu sögðu hef ég ákveðið að bjóða Samfylkingunni krafta mína að nýju og nú fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. Ég geri mér von um góða niðurstöðu í prófkjörinu og hef ákveðið að stefna á þriðja sæti listans. Ég geri mér fulla grein fyrir því að fyrir á fleti eru sterkir kandídatar og barist verður um sætið. Mér hefur meira að segja verið tjáð að sætið sé frátekið fyrir aðra frambjóðendur. En ég mun ekki velta mér upp úr því, ég mun kynna fyrir hvað ég stend, þau mál sem ég brenn fyrir og þekki vel. Ég tel mig eiga góðan möguleika á þriðja sætinu enda er ávallt þörf fyrir endurnýjun í stjórnmálum, að fá fram sjónarhorn annarra og ég mun koma fram með nýja vinkla. Flestir þekkja stöðu mína í málefnum jaðarsettra og minnihlutahópa en auk þess mun ég standa með smærri fyrirtækjum og úthverfum borgarinnar enda breiðhyltingur nú, uppalinn í árbænum og Fylkismaður,“ segir í tilkynningunni.
Samfylkingin Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2022 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira