Vorkennir Alfreð sem segir Íslendingum í blóð borið að bregðast hratt við Sindri Sverrisson skrifar 25. janúar 2022 14:31 Alfreð Gíslason er á sínu þriðja stórmóti sem þjálfari Þýskalands en kórónuveirufaraldurinn hefur sett svip sinn á þau öll. Getty/Marijan Murat Íþróttastjóri þýska handknattleikssambandsins segir að Alfreð Gíslasyni sé mikil vorkunn að hafa ekki enn fengið að stýra þýska landsliðinu við eðlilegar aðstæður. Sjálfur segist Alfreð vera frá Íslandi og því vanur að þurfa að bregðast fljótt við breytingum.
Alfreð er á sínu þriðja stórmóti með Þýskalandi en öll hafa mótin farið fram í skugga kórónuveirufaraldursins. Alfreð var ætlað að koma Þýskalandi í allra fremstu röð á nýjan leik en fékk sáralítinn undirbúning fyrir HM í Egyptalandi fyrir ári síðan, þar sem veiran setti strik í reikninginn, og Þjóðverjar enduðu þar í 12. sæti. Til að bæta upp fyrir frestanir í þýsku deildinni vegna faraldursins hafði svo verið leikið afar þétt þar fram að Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar. Leikmenn fengu aðeins viku hlé fyrir leikana og Þjóðverjar féllu úr leik í 8-liða úrslitum. Fjórir leikmenn eftir Á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu hefur svo ekkert lið lent verr í kórónuveirusmitum en Þýskaland. Af þeim 17 leikmönnum sem Alfreð tók með á mótið eru aðeins fjórir enn í hópnum fyrir leikinn við Rússland á eftir. Aðrir hafa greinst með kórónuveirusmit. Þýskaland getur í besta falli endað í 7. sæti en einnig endað í 12. sæti. „Auðvitað vorkenni ég Alfreð. Það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri klikkun sem þetta hefur verið, og að hann sé núna á þriðja stórmótinu en hafi ekki enn fengið eitt mót við eðlilegar aðstæður,“ sagði Axel Kromer, íþróttastjóri þýska sambandsins, við Bild. Alfreð er sjálfur ekki að æsa sig yfir hlutunum: „Ég sætti mig við stöðuna. Ef að ég fer að hugsa öðruvísi þá gera leikmennirnir það líka. Við Íslendingar komum frá svæði þar sem maður varð að geta brugðist hratt við ef eitthvað gerðist. Annað hvort brugðust menn við eða létu lífið. Þeir sem brugðust hratt við urðu eftir og hafa skilað genunum áfram,“ sagði Alfreð. „Ég er stoltur af strákunum og hef notið þess í botn að vinna með liðinu,“ sagði Alfreð.
EM karla í handbolta 2022 Íslendingar erlendis Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Sjá meira