Fylltu stúkuna sína af fimmtán þúsund böngsum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2020 11:31 Stúkan á Abe Lenstra Stadium var full á leik Heerenveen og Emmen þótt að áhorfendur væru bannaðir. EPA-EFE/COR LASKER
Það voru engir áhorfendur í stúkunni á síðasta leik hollenska liðsins Heerenveen en stúkan á heimavelli liðsins var þó langt frá því að vera tóm. Gamla Íslendingaliðið Heerenveen í Hollandi nýtti áhorfendabannið í Hollandi til góðra verka á dögunum. Heerenveen ákvað að safna fyrir krabbameinsveik börn en gera það á nýstárlegan hátt. Heerenveen mætti FC Emmen í hollensku deildinni á föstudaginn og áhorfendur voru bannaðir vegna sóttvarnarreglna í landinu en líkt og annars staðar í Evrópu þá eru Hollendingar að berjast við aðra bylgju í kórónuveirufaraldrinum. Forráðamenn Heerenveen vildu ekki hafa stúkuna tóma og fundu leið til að bæta úr því og styrkja um leiðinni gott málefni. Dutch club Heerenveen filled their stadium with 15,000 teddy bears on Saturday. Each bear represented a child affected by cancer in the country. They were all sold within 24 hours, raising over 230,000 for local children's charities pic.twitter.com/dI8qLLv31Y— ESPN FC (@ESPNFC) October 26, 2020 Heerenveen fór í samstarf við KiKa og lyfjafyrirtækið MSD en þau kvöttu stuðningsmenn hollenska liðsins til að kaupa lítinn bangsa og um leið vekja athygli á stöðu barna með krabbamein í Hollandi. Stuðningsmenn Heerenveen létu sitt ekki eftir liggja heldur keyptu upp alla fimmtán þúsund bangsana sem voru í boði og það á fyrsta sólarhringnum eftir þeir fóru í sölu. Samtals safnaði meira en 230 þúsund evrur, 38 milljónir í íslenskum krónum, sem munu fara í þetta mikilvæga og þarfa málefni. Allir þessir fimmtán þúsund bangsar voru síðan klæddir í búning Heerenveen og var síðan stillt upp út um alla stúku á mjög myndrænan hátt. Þetta hafði líka góð áhrif á leikmenn Heerenveen sem unnu leikinn sannfærandi 4-0. Hér fyrir neðan má sjá sviðmyndir frá leiknum. watch on YouTube
Hollenski boltinn Mest lesið Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Enski boltinn Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti Enn ein vonbrigðin fyrir United Enski boltinn Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Íslenski boltinn „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Enski boltinn Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Í beinni: Aston Villa - Chelsea | Sigur Villa kveikir Meistaradeildarbál Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Guðrún skoraði og með fullt hús stiga á toppnum Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Messi minnist fallins félaga Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Hrósar Alonso fyrir að taka ekki við Liverpool eða Bayern: „Þarf ekki að sanna neitt“ Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Sjá meira